Hið árlega Brúarhlaup á Selfossi fer fram laugardaginn 8. ágúst 2025. Hlaupavegalengdir eru 10 km, 5 km, 3 km ásamt 800 m Sprotahlaupi fyrir krakka 8 ára og yngri. Allar hlaupaleiðir eru löggiltar og mældar upp af viðurkenndum aðila og flögutímataka er í öllum hlaupavegalengdum. 5 km og 10 km hlaupin eru viðurkennd og vottuð af Frjálsíþróttasambandi Íslands.
Veittir verða verðlaunapeningar fyrir efstu þrjú sæti í aldursflokkum og í heildarkeppni karla og kvenna í 5 km og 10 km hlaupum. Einnig eru veitt verðlaun í 3 km hlaupi og 5 km hjólreiðum, auk útdráttarverðlauna meðal þátttakenda. Verðlaunaafhending fer fram kl. 13:00 í Miðbæjargarðinum.
Skráning fer fram á netskraning.is. Allir keppendur fá frítt í sund eftir hlaup, í boði Sveitarfélagsins Árborgar, gegn framvísun keppnisnúmers.

Tímasetningar og staðsetningar
Vegna óvæntra framkvæmda hjá Sveitarfélaginu Árborg, eru smávægilegar breytingar á hlaupaleiðum frá fyrra ári:
- Hlauparar í 10 km hlaupi verða ræstir á Árvegi fyrir neðan/norðan Krónuna á Selfossi kl. 11:30
- Hlauparar í 5 km hlaupi verða ræstir á Árvegi, fyrir neðan/norðan Krónuna á Selfossi kl. 12:00
- Keppendur í 5 km hjólreiðum verða ræstir kl. 11:00 á Árvegi fyrir neðan/norðan Krónuna á Selfossi kl. 11:00.
- Keppendur í 3 km skemmtiskokki verða ræstir í miðbæjargarði Selfoss kl. 11:30
- Keppendur í 800m Sprotahlaupi verða ræstir í miðbæjargarði Selfoss kl. 12:30
Allir þátttakendur koma í mark í Sigtúnsgarðinum í miðbæ Selfoss.
Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu UMF Selfoss.
Sjá heimasíðu:Brúarhlaup Selfoss Skráning hér:
Brúarhlaupið á Selfossi

