13.4 C
Selfoss

Fjör á Unglingalandsmóti UMFÍ

Vinsælast

Unglingalandsmót UMFÍ var haldið á Sauðárkróki um verslunarmannahelgina og þangað mættu um 130 keppendur af sambandssvæði HSK, allir í nýjum og glæsilegum treyjum í boði SS og HSK. Það var glæsilegur HSK hópurinn sem gekk inn á völlinn á mótsetningunni, þar sem gleðin var í fyrirrúmi.

Þátttakendur á aldrinum 11-18 ára voru í heildina tæplega 1.100 talsins af öllu landinu sem kepptu í rúmlega 20 íþróttagreinum og sóttu svo ýmsa afþreyingu milli greina og á kvöldin. Á mótinu var hugað að því að bjóða upp á eitthvað fyrir sem flesta, en í boði var ýmis afþreying fyrir 10 ára og yngri og einnig fyrir fullorðna.

 Unglingalandsmótsnefnd HSK ákvað að  leggja ekki eins mikla áherslu á árangur keppenda á mótinu, eins og verið hefur. Nú verða ekki birt nöfn þeirra sem unnu einstaka greinar. Það er reyndar ekki hlaupið að því að taka slíkan lista saman, þar sem félög keppenda koma ekki fram í úrslitum. Úrslit allra greina má sjá á vefsvæði mótsins, https://www.umfi.is/vidburdir/unglingalandsmot/urslit-2026/

Mótinu var slitið með tónleikum, brekkusöng og flugeldasýningu af Nöfunum ofan við íþróttasvæðið á Sauðárkróki. Jóhann Steinar Ingimundarson, formaður UMFÍ, heiðraði þar Ómar Braga Stefánsson, framkvæmdastjóra móta UMFÍ, en þetta er síðasta mótið sem hann leiðir eftir rúm 20 ár.  Á þessum árum hafa sex UMFÍ mót verið haldin á HSK svæðinu. Á þessum tímamótum þökkum við Ómari Braga farsælt og ánægjulegt samstarf við framkvæmd mótanna.

Ekki liggur ljóst fyrir hvar Unglingalandsmótið á næsta ári verður haldið, en umsóknarfrestur um að halda mótið hefur verið framlengdur til 15. september nk.

Jón Aðalsteinn Bergsveinsson, kynningarfulltrúi UMFÍ og ritstjóri Skinfaxa var með myndavélina á lofti alla helgina og hér eru nokkrar myndir sem hann tók á mótinu.

Nýjar fréttir