12.7 C
Selfoss

Stór jarðskjálfti við Nesjavelli

Vinsælast

Jarðskjálfti af stærð 4,1 mældist við Nesjavelli, norðan við Hengilinn rétt eftir klukkan hálf eitt í nótt. Skjálftinn fannst vel víða um Suðvesturland og hefur honum fylgt minniháttar eftirskjálftavirkni.

Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands er þetta stærsti jarðskjálftinn sem mælst hefur á Nesjavallasvæðinu síðan árið 1998, þegar skjálfti af stærð 4,6 varð á svipuðum slóðum.

Í tilkynningu frá Veðurstofunni kemur fram að jarðskjálftavirkni á þessu svæði sé algeng.

Nýjar fréttir