14.5 C
Selfoss

Venusbræður stofna nýtt fyrirtæki

Vinsælast

Bræðurnir Hlynur Snær Jóhannesson og Styrmir Jarl Rafnsson, eigendur hringrásarverslunarinnar Venus á Selfossi, hafa opnað nýja netáfengisverslun sem ber heitið WINO. Verslunin var opnuð um síðustu helgi eftir rúmlega eins árs undirbúning.

„Það var ótrúlega góð tilfinning að geta loksins opnað eftir að hafa unnið að þessu svo lengi. Við höfum alltaf haft gaman af því að skapa eitthvað nýtt og byggja upp fyrirtæki. Við rekum Venus verslun saman og eftir að hafa verið í þeim rekstri núna í 1 og hálft ár langaði okkur að takast á við nýja áskorun,“ segja Hlynur og Styrmir í samtali við Dagskrána.

Hugmynd drengjanna var að búa til nútímalega netverslun þar sem fólk getur pantað áfengi á einfaldan og þægilegan hátt. Bræðurnir reka Venus áfram samhliða WINO og fyrirtækin munu bæði halda áfram að þróast.

Pantanir hjá WINO eru gerðar á heimasíðu þeirra wino.is og síðan sóttar að Hrísmýri 5 á Selfossi þegar þær eru tilbúnar.
„Við erum einnig að vinna að því að bæta heimsendingu við þjónustuna og vonumst til að geta boðið hana fljótlega.“

Stærra verkefni en búist var við

Undirbúningurinn að opnuninni hófst í apríl 2025.
„Við héldum í byrjun að þetta tæki nokkra mánuði, en það endaði með að taka rúmlega ár. Leyfisferlið var mjög umfangsmikið og það þurfti að klára ótal atriði áður en hægt var að opna. Þó að þetta hafi tekið lengri tíma en við bjuggumst við þá var það vel þess virði.“

Hlynur og Styrmir segja reynsluna af Venus hafa nýst þeim ótrúlega vel við að byggja upp WINO.
„Þegar maður hefur rekið fyrirtæki áður lærir maður mikið um samskipti við viðskiptavini, skipulag, birgðastýringu og markaðssetningu.“
Þeir segja sig jafnframt hafa farið inn í þetta verkefni með meiri reynslu og meira sjálfstraust en þegar þeir opnuðu Venus.

Jákvæðar viðtökur

Hlynur og Styrmir hafa fengið jákvæðar viðtökur á nýju fyrirtæki. „Það er sérstaklega gaman að finna stuðninginn frá heimafólki á Suðurlandi.“

„Við viljum þakka öllum sem hafa stutt okkur frá fyrsta degi. Stuðningurinn hefur skipt miklu máli og gefið okkur aukinn kraft. Þetta er bara byrjunin hjá WINO. Við ætlum að halda áfram að bæta þjónustuna, stækka úrvalið jafnt og þétt og bjóða fljótlega upp á heimsendingu. Við hlökkum til að taka á móti bæði nýjum og gömlum viðskiptavinum og sjá fyrirtækin vaxa á næstu árum,“ segja þeir að lokum.

Fyrri grein

Nýjar fréttir