14.5 C
Selfoss

Fiskur í veseni

Vinsælast

Sunnlenski matgæðingur vikunnar er Rúnar Helgi Sigmarsson.

Ég þakka Jón Ægi kærlega fyrir þessa áskorun.

Fiskur í veseni

3 flök af ýsu
1/2 askja Sveppir
1 Paprika
1 Laukur
Majónes
Súrmjólk
Karrí
Rifinn ostur
Salt og pipar eftir smekk

Aðferð:

  • Hita ofninn í 180 gráður(á blæstri)
  • Sker niður lauk, papriku, sveppi og set í skál. Bæti við majónesi og smá súrmjólk, ég er ekki með nákvæmar mælingar á hvað ég set mikið, þetta eru um 8 msk af majónesi og slump af súrmjólk til að þynna „sósuna“. Krydda vel með karrí.
  • Sker hvert flak í 4-6 bita og raða í eldfast mót, krydda með salt og pipar og inn í ofn í 10 mínútur.
  • Tek fiskinn úr ofninum og helli mest af vökvanum úr. Skelli sósunni yfir fiskinn, ost yfir og aftur inn í ofn þar til osturinn er bráðnaður.

Gott er að vera með soðnar kartöflur eða hrísgrjón í meðlæti. Einnig mjög gott að setja smá Lao Gan Ma crispy chili olíu yfir.


Ég ætla skora á Vignir Þór Sigurjónsson að vera næsti matgæðingur. Hann er mikill taco og kjötsúpu maður.

Nýjar fréttir