Sláturfélag Suðurlands og Héraðsambandið Skarphéðinn undirrituðu sl þriðjudag nýjan samstarfssamning til þriggja ára. Þetta er mikilvægur samningur fyrir HSK en með samningnum verður áfram hægt að gefa öllum keppendum HSK sem fara á Unglingalandsmót UMFÍ treyjur sem merktar eru HSK og SS. Undanfarin ár hafa keppendur HSK vakið athygli fyrir mikla samstöðu á Unglingalandsmótum og hefur skipt miklu máli að þeir hafa verið í samstæðum og merktum treyjum.
Af þessu tilefni var ný treyja kynnt sem keppendur á Unglingandsmótinu fá afhentar í Selinu nk. mánudag 16:30 til 19:00. Þá verða grillaðar SS pylur í tilefni af tímamótum. Þá verður SS sýnilegt á vettvangi HSK. HSK þakkar SS kærlega fyrir stuðninginn við ungu keppendur sína og hlakkar til samstarfsins.


