Sendiráð Indlands, í samvinnu við indversku menningarmálastofnunina (ICCR), stendur fyrir sýningu á klassískum indverskum Kuchipudi-dansi 17. ágúst kl 17:30 á Sviðinu á Selfossi.
Kuchipudi er eitt elsta og virtasta klassíska dansform Indlands og fléttar saman hreyfingar, frásagnarlist og aldagamla menningararfleifð. Á sýningunni flytur Bhavana Reddy heillandi dagskrá sem veitir innsýn í ríkulega hefð indversks dans.
Kuchipudi-dansinn vekur tilfinningu fyrir helgisið og yfirnáttúrulegri nærveru. Tónlistin er draumkennd og leiðir huginn til fjarlægra staða þar sem söngröddin bergmálar. Búningarnir eru skrautbúnir og einkennast af bæði djúpum og skærum litum sem glitra í ljósinu, stundum í gylltum og grænum tónum. Hver hreyfing virðist vera órjúfanlegur hluti frásagnarinnar og svipbrigðin eru nákvæm og tjáningarrík. Rytminn gefur til kynna margslungna samræðu við áhorfendur. Sprengikraftur og hraði víkja reglulega fyrir hægari hreyfingum og augnablikum kyrrstöðu. Þar nær frásögnin að anda og tilfinningaleg dýpt hennar magnast. Leikræn tjáning og lotningfléttast saman í þessari fornu danshefð.
Aðgangur er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.
Þórdís Jóhanna Lareau


