10.5 C
Selfoss

Kótelettan hefst í kvöld

Vinsælast

Kótelettan BBQ & Music Festival hefst í kvöld með glæsilegum upphitunartónleikum á Eimskipssviðinu við Hvítahúsið á Selfossi, þar sem gestum býðst að njóta tónlistar frá nokkrum af vinsælustu tónlistarmönnum landsins. Aðgangur er ókeypis og ekkert aldurstakmark er á tónleikunum, sem fara fram frá klukkan 19:00 til 22:00.

Á sviðið stíga Aron Can, Jón Jónsson ásamt hljómsveit, Koppafeiti, Slysh og Svitabandið, en Oddur Helgi verður kynnir kvöldsins og heldur utan um dagskrána.

„Þessir upphitunartónleikar eru orðnir skemmtileg hefð hjá okkur og frábær leið til að hefja Kótelettuhelgina. Við viljum bjóða öllum að taka þátt, hvort sem fólk ætlar á alla hátíðina eða vill einfaldlega njóta góðrar tónlistar á sumarkvöldi. Það er frítt inn, engin aldurstakmörk og við hlökkum til að sjá Selfoss fyllast af fólki og góðri stemningu,“ segir Einar Björnsson, stofnandi Kótelettunnar.

Mynd: Aðsend.

Stór hátíðarhelgi fram undan

Upphitunartónleikarnir marka upphaf einnar stærstu hátíðarhelgar sumarsins á Selfossi. Á föstudag og laugardag tekur Kótelettan Music Festival við með yfir 30 tónlistaratriðum, þar sem meðal annars koma fram Páll Óskar, FM95BLÖ, Birnir, Aron Can, Herra Hnetusmjör, GDRN, Klara Einars, Emmsjé Gauti, Sigga Beinteins, Eiríkur Hauksson, Papar, Doctor Victor, Retro Stefson og fjölmargir fleiri.

Á laugardeginum verður jafnframt ókeypis fjölskylduhátíð á BBQ Festival-svæðinu frá klukkan 13:00 til 16:00, þar sem boðið verður upp á skemmtun fyrir alla fjölskylduna. Á dagskrá verða meðal annars VÆB, Emmsjé Gauti, Lína Langsokkur, Ívar og Hákon, Guðjón Smári og Jóna Margrét, Freyja Karamellufluga og Hvolpasveitin.

Gestir geta einnig heimsótt Stóru grillsýningu Kótelettunnar, þar sem helstu framleiðendur og söluaðilar grilla og grillbúnaðar kynna nýjustu vörurnar á markaðnum, auk hins vinsæla Góðgerðagrills Kótelettunnar, þar sem landsþekktir einstaklingar og gestakokkar grilla til styrktar góðu málefni.
Skipuleggjendur segja allt klárt fyrir fjölbreytta og viðburðaríka helgi þar sem tónlist, grillmenning og fjölskylduskemmtun fara saman á einum stærsta sumarviðburði ársins á Suðurlandi.

Nýjar fréttir