11.7 C
Selfoss

Kærleikur og tími

Vinsælast

Kærleikur og tími er yfirskrift næstu tónleika á Tónlistarhátíðinni Englar og menn í Strandarkirkju sem haldnir verða sunnudaginn 12. júlí nk. kl. 14. Þar koma fram dúóið Siggi&Ingibjörg, þau Ingibjörg Fríða Helgadóttir sem syngur og leikur á slagverkshljóðfæri og Sigurður Ingi Einarsson sem syngur, leikur á gítar og slagverkshljóðfæri. Þau bjóða upp á ferðalag um íslenska tónlist í tali og tónum, frá tvísöng til sönglaga nútímans.

Siggi og Ingibjörg hafa starfað undanfarin ár bæði við lifandi flutning og tónsmíðar en einnig leitt skapandi verkefni og tónlistarsmiðjur með fjölbreyttum hópum. Þau hafa hlotið innlendar og erlendar tilnefningar og verðlaun fyrir störf sín (Lúðurinn og YAM – young audiences music).

Tónleikadagskráin sem þau flytja í Strandarkirkju þann 12. júlí varð til í tónlistarhúsinu Hörpu. Undanfarin ár hafa þau tekið reglulega á móti innlendum og erlendum hópum og farið með þá í ferðalag um íslenska tónlistarsögu á lifandi og skemmtilegan hátt. Á tónleikunum flytja þau lög og segja frá þeim í tímaröð; byrja á tvísöng og þjóðlögum, fara síðan yfir í klassísk íslensk sönglög, dægurlög, popp og rokk – allt fram til dagsins í dag.

Miðaverð er kr. 5000 og kr. 4500 fyrir 65+.

Miðasala er við innganginn.
Tónlistarhátiðin Englar og menn stendur yfir í júlímánuði með tónleikum kl. 14. Nánar upplýsingar um tónlistarhátíðina og næstu viðburði er á Facebooksíðu hátíðarinnar.

Sigurður Ingi Einarsson er lagahöfundur, hljóðfæraleikari og tónlistarkennari. Hann lauk burtfararprófi í slagverki frá FÍH og BA-gráðu í skapandi tónlistarmiðlun frá LHÍ árið 2014. Sigurður Ingi er virkur í íslensku tónlistarlífi, leikur með ýmsum hljómsveitum og sinnir jafnframt fjölbreyttum verkefnum á sviði tónlistar, auk reglulegrar tónlistarkennslu við Tónskóla Sigursveins, Fellaskóla og Fjölbrautaskólann í Breiðholti. Sigurður Ingi semur tónlist og texta undir eigin nafni og væntanleg er fyrsta sólóplata hans undir listamannsnafninu SUÐUR.

Ingibjörg Fríða Helgadóttir er söngkona með fjölbreyttan bakgrunn í tónlist. Hún hefur lokið burtfararprófi í bæði klassískum og rytmískum söng, auk BA-gráðu í skapandi tónlistarmiðlun frá Listaháskóla Íslands. Hún kemur reglulega fram hérlendis og erlendis, bæði sem einsöngvari og í hóp. Ingibjörg Fríða er meðlimur í atvinnukammerkórnum Cantoque Ensemble, en kemur einnig fram með fjölbreyttum kammerhópum og hljómsveitum á tónleikum og í upptökum þvert á tónlistarstíla. Hún hlaut tilnefningu til söngs ársins í djassflokki á Íslensku tónlistarverðlaununum árið 2024.

Nýjar fréttir