11.7 C
Selfoss

Fegrunarátak Hveragerðisbæjar

Vinsælast

Hveragerðisbær stendur fyrir sameiginlegu hreinsunar- og fegrunarátaki dagana 13.–19. júlí og hvetur alla bæjarbúa til að leggja sitt af mörkum við að gera bæinn snyrtilegri og vistlegri.

Átakið er haldið í tilefni af því að Hveragerðisbær fagnar 80 ára afmæli á árinu. Markmiðið er að efla ásýnd bæjarins og hvetja íbúa til að taka þátt í verkefnum á borð við ruslatínslu, snyrtingu gróðurs, frágang lóða, fjarlægingu garðaúrgangs og annarra hluta sem falla til við vor- og sumartiltekt.

Gjaldfrjálst verður fyrir almenning á Gámasvæði Hveragerðisbæjar alla vikuna og verður einnig sérstök aukaopnun sunnudaginn 19. júlí frá klukkan 12 til 16. Hefðbundinn opnunartími gámasvæðisins er virka daga frá kl. 15 til 18 og á laugardögum frá kl. 12 til 16.

Áhaldahús Hveragerðisbæjar býður jafnframt eigendum aðstoð við að fjarlægja stóra eða þunga hluti, svo sem bílhræ, vélarhluti, trampólín, gamlar heimilistæki eða aðra sambærilega muni, án endurgjalds. Einnig geta þeir sem tína rusl á víðavangi haft samband við áhaldahúsið ef þörf er á að sækja stærra rusl eða mikið magn þess.

Bæjarbúar eru hvattir til að hafa samband við móttöku bæjarskrifstofu til að óska eftir aðstoð eða koma á framfæri ábendingum um svæði þar sem bæta mætti umhirðu og ásýnd. Slíkar ábendingar verða teknar til úrvinnslu hjá áhaldahúsi og garðyrkjudeild bæjarins.

Hveragerðisbær hvetur íbúa til að taka höndum saman í afmælisárinu og leggja sitt af mörkum til að gera bæinn enn snyrtilegri og fallegri.

Nýjar fréttir