10.5 C
Selfoss

Sterk frammistaða UMFS-keppenda í Sólbrekku

Vinsælast

Fyrsta umferð í Íslandsmótinu í motocross fór fram í Sólbrekku þann 13. júní síðastliðinn á vegum Vélhjólaíþróttafélags Reykjanes. Keppendur frá UMFS stóðu sig með prýði og náðu góðum árangri í sínum flokkum.

Alexander Adam sigraði í MX1 flokkinn og Eric Máni fór með sigur af hólmi í MX2 flokki. Í kvennaflokki lenti Ásta Petrea í öðru sæti.

Veður setti svip sinn á keppnisdaginn en mikið rok og sól gerðu keppendum nokkuð erfitt fyrir. Þurr braut og rok ollu því að mikið ryk lá yfir svæðinu, sem reyndi á bæði keppendur og áhorfendur.

Nýjar fréttir