10.6 C
Selfoss

Endurvakning sveitaballanna – Greifarnir á Borg í Grímsnesi

Vinsælast

Næstkomandi föstudag, 26. júní, heimsækja Greifarnir félagsheimilið á Borg í Grímsnesi með „Síðasta sveitaballið“.

Hljómsveitin hefur verið að fagna 40 ára afmæli en í 40 ár hafa Greifarnir verið stór hluti af íslenskri tónlistarsögu.

„Síðasta sveitaballið“ er sérstök tónleikaferð þar sem Greifarnir heimsækja valda staði víða um land og kveikja aftur í stemningunni sem margir vilja meina að sé horfin, en hún er það alls ekki.

Hugmyndin að Síðasta sveitaballinu

Kristján Viðar Haraldsson, söngvari Greifanna, segir hugmyndina hafa kviknað þegar hljómsveitin fór að velta fyrir sér hvað væri mest í anda Greifanna á 40 ára afmælinu. Fljótlega fóru sveitaböllin og félagsheimilin að koma upp í umræðunni því þar liggur stór hluti af sögu sveitarinnar.

Þá segir Kristján, eða Viddi eins og hann er oftast kallaður, hugmyndina um „Síðasta sveitaballið“ hafa fæðst – að leggja af stað í ferðalag um landið og heimsækja aftur nokkur af þeim húsum sem gegndu svo stóru hlutverki í íslensku tónlistarlífi.

„Við hefðum auðvitað getað haldið einn eða tvo stóra afmælistónleika, en okkur fannst þessi leið persónulegri og meira í anda sveitarinnar,“ segir Viddi.
Greifarnir urðu til á sveitaballahringnum og stór hluti af þeirra ferli byggðist á því að ferðast á milli félagsheimila og spila fyrir fólk um allt land.
„Okkur fannst því eðlilegt að halda upp á afmælið með því að fara aftur út á vegina og hitta fólkið sem hefur fylgt okkur í gegnum árin.“

Greifarnir árið 1887.

Viðtökurnar

Viddi segir viðtökurnar sem þeir hafa fengið það sem af er túrnum hafa verið einstaklega góðar.

„Fólk hefur tekið okkur opnum örmum og það sem hefur komið mest á óvart er hversu sterkt nostalgían lifir. Það eru margir sem segja okkur að þeir hafi ekki komið á sveitaball í mörg ár, en þegar þeir mæta finnist þeim þeir verða ungir á ný í eitt kvöld,“ segir hann.
„Margir tala um að þeir finni aftur sömu tilfinninguna og þeir upplifðu fyrir tuttugu, þrjátíu eða jafnvel fjörutíu árum þegar þeir mættu á sín fyrstu böll. Það er ótrúlega gaman að heyra slíkar sögur.“

Finnst ykkur yngri kynslóðir hafa misst af með því að upplifa ekki þessa „sveitaballamenningu“?

„Kannski að einhverju leyti. Samfélagið hefur breyst mikið og fólk hefur fleiri leiðir til afþreyingar í dag. En ég held að þörfin fyrir að hittast, syngja saman og skemmta sér hafi ekkert breyst. Þess vegna finnst mér gaman að sjá að yngra fólk hefur líka verið að mæta og upplifa þessa stemningu með okkur.“

Tónlistin hluti af sögu fólksins

Þegar Viddi er spurður út í eftirminnilegustu sveitaböllin segir hann nánast ómögulegt að velja eitt kvöld fram yfir annað. Hann segir sveitaballaárin hafa verið ævintýraleg og efni í heila bók.

„Það sem mér finnst skemmtilegast þegar ég horfi til baka er hvað margir hafa kynnst á sveitaböllunum. Í gegnum árin höfum við oft hitt fólk sem segir okkur að það hafi kynnst makanum sínum á balli með Greifunum. Sumir hafa meira að segja sagt okkur að fyrsti kossinn hafi verið í laginu Sumarnótt eða Frostrós.“

„Við höfum síðan fengið að spila í brúðkaupum hjá fólki sem kynntist á sveitaballi hjá okkur mörgum árum áður. Það er eiginlega stærri heiður en flest annað sem maður upplifir í þessu starfi. Þá áttar maður sig á því að tónlistin varð hluti af sögu fólks og lífi þess,“ segir Viddi.

Hvaða lag kveikir sterkustu viðbrögðin hjá gestum enn í dag?
„Það er erfitt að nefna bara eitt lag en Útihátíð, Frystikistulagið, Viskubrunnur, Sumarnótt, Þyrnirós, Hraðlestin og Skiptir engu máli vekja alltaf sterk viðbrögð og fjöldasöng.“

Að lokum

Viddi segir að lokum að það sem standi sérstaklega upp úr og það sem hann er hvað þakklátastur fyrir á þessum 40 árum sé að þeir séu enn saman eftir öll þessi ár.

Er þetta raunverulega síðasta sveitaballið?
„Þetta er spurning sem við fáum mjög oft. „Síðasta sveitaballið“ er fyrst og fremst nafn á ferðalaginu og vísun í ákveðinn tíma og ákveðna menningu sem margir sakna. En hvort þetta verði raunverulega síðasta sveitaballið? Það er ómögulegt að segja. Við verðum jú ekki fertugir aftur og enginn veit nákvæmlega hvað framtíðin ber í skauti sér. Þess vegna höfum við líka verið að segja við fólk að ef það langar að upplifa þessa stemningu aftur þá sé betra að bíða ekki of lengi. Það er alltaf hættulegt að ætla sér að mæta næst. Stundum er næst bara ekki til. Þannig að við hvetjum fólk einfaldlega til að mæta, syngja með, dansa og eiga góða kvöldstund með okkur á meðan tækifærið er til staðar.“

Hægt er að tryggja miða á „Síðasta sveitaballið“ á tix.is. Síðasta sveitaballið verður jafnframt haldið í Aratungu í Reykholti 15. ágúst næstkomandi.

Nýjar fréttir