12.3 C
Selfoss

Raunir íþróttafélags Hamars

Vinsælast

Síðustu 4 árin hafa verið erfið ár og næstu 2 ár verða líka erfið fyrir Íþróttafélagið Hamar í Hveragerði Hinn 22: apríl 2026 birtist grein í Dagskránni fréttablaði Suðurlands (dfs.is) um störf félagsins fyrir árið 2025. Þar kemur fram að íþróttastarfsemin hafi breyst mikið til hins verra. Lofthjúpur Hamarshallarinnar féll saman 2022 vegna mannlegra mistaka. Ekki Var þó komið að endurnýjunarþörf hjúpsins samkvæmt upplýsingum framleiðanda. Höllin var vinsæl og mikið nýtt af íþróttafólki hvernig sem viðraði. Eldri borgurum var enn fremur úthlutaður tími þar til hreyfinga og líkamsþjálfunar.
Í starfsskýrslu Hamars 2025 birtist svört mynd af rekstri félagsins. Þar er kvartað undan aðstöðuleysi eftir að Hamarshöllin féll. Stór hluti af íþróttastarfi félagsins raskaðist en orðrétt segir þar um raunir Hamars. „Blakdeildin þarf nú að halda Kjörís–mótið í Þorlákshöfn„. „Fimleikadeildin hefur hætt keppnisstarfi í Hveragerði og keppir nú í Þorlákshöfn. „Körfuknattleiksdeildin hefur þurft að senda elstu flokkana til æfinga til Þorlákshafnar„. „Afrekstímar í badminton hafa verið sóttir til Reykjavíkur“. og „hluti yngri barna fær ekki inni í núverandi íþróttahúsi hluta tímans„. Þetta er óglæsileg lýsing á óásættanlegum aðstæðum sem bæjarfélagið bauð æskunni.
Pólitískur styrr hafði verið þegar meirihluti bæjarstjórnar ákvað að reisa Hamarshöllina. Sjálfstæðisflokkurinn (D) var í meirihluta á þessum tíma en andstaða var hörð gegn honum hjá bæjarstjórnarandstöðunni: sem vildi reisa „alvöru„ íþróttahús sem aðeins átti að kostar 290 milljónir. Svo skemmdist lofthjúpurinn rétt fyrir kosningar 2022 og hann féll saman. Í þessum kosningum missti Sjálfstæðisflokkurinn meirihluta sinn og við tók meirihluti Okkar Hveragerðis (O) og Framsóknar (B). Hjúpurinn hafði verið tryggður en ekki búið að ganga frá kaupum á nýjum. Nýi meirihlutinn (O) og (B) gátu ekki hugsað sér „belginn„ eftir að hafa deilt við (D) þegar hann var í byggingu. Hann hætti strax við „belginn„ og leitaði tilboða í „alvöru“ íþróttahús. Ári síðar kom tilboð upp á 1100 milljónir sem meirihlutinn hafnaði.

 

Íþróttafélagið Hamar var í “rúst“ eftir að Hamarshöllin féll. Leitað var lausna en nú 4 árum síðar er enn ekki búið að finna lausn á íþróttastarfi Hamars. Hafin var bygging á upphituðum gervigrasvelli sem sennilega átti að koma í stað “belgsins“. Sá völlur hefur  kostað 390 milljónir til þessa: en lokakostnaður er áætlaður um 600 milljónir þegar framkvæmdum lýkur. Þá verða alls þrír opnir íþróttavellir inni í dal hlið við hlið. Spurt er, var nokkur þörf fyrir þriðja völlinn? Dugðu ekki tveir? Miklu hagkvæmara og ódýrara hefði verið að endurreisa “belginn, fyrir um 60 milljónir.

Samtímis var ráðist í að byggja stórt og myndarlegt “alvöru“ íþróttahús við hliðina á íþróttahúsi framhaldsskólans. Framkvæmdum verður lokið 2027–2028 samkvæmt áætlun. Þá verða þar 2 íþróttahús á sama stað, hlið við hlið. Nýja íþróttahúsið kosta 2 milljarða + þegar upp verður staðið. Sorgleg starfslýsing íþróttafélagsins fyrir árið 2025 getur því átt við starfsemina allt frá 2022 og áfram til 2027–2028, þegar nýja íþróttahúsið verður tekið í notkun, 5–6 árum eftir fall lofthjúpsins. Því er engin furða að íþróttafélagið kvarti yfir aðstöðuleysi í bænum.

Meirihluti Sjálfstæðisflokksins ætlaði að endurreisa lofthjúpinn á 6-9 mánuðum. Hann var tryggður, og uppsetningarkostnaðurinn vel viðráðanlegur. “Belgurinn“ hefði verið skynsamleg ákvörðun fyrir íþróttastarfsemi Hamars. Ef til vill verður hann endurreistur síðar, ef íþróttafélagið telur sig þurfa meiri og betri aðstöðu, og skilningur hjá bæjarstjórn.

Fyrrum meirihluti (O) of (B) stærir sig í grein í Dagskránni 28. maí 2026 af “skýrri framtíðarsýn og ábyrgum vinnubrögðum“, sem er óverðskuldað sjálfshól. Íþróttafélagið Hamar getur ekki tekið undir þá staðhæfingu, né heldur íbúar Hveragerðis. Ekki hefur notast við heilbrigða dómgreind, heldur hefur pólitík eyðilagt íþróttastarfið í 5-6 ár. Framangreind óstjórn hefur eflaust átt þátt í falli meirihlutans við síðustu kosningar. Skaðinn fyrir æskuna er mikill, í raun er hann óbætanlegur fyrir 5-6 kynslóðir.

Róbert Pétursson,
Hveragerði

Nýjar fréttir