10.6 C
Selfoss

Pabbakjúklingur

Vinsælast

Matgæðingur vikunnar er Gísli Stefánsson.

Heill kjúklingur í kryddlegi

Margir hræðast að grilla heilan kjúkling, en með þessari aðferð er það leikur einn. Í uppskriftinni þurfum við heilan fugl, helst stóran, ca. 1,8–2,0 kg. Leggjum hann í kryddpækil yfir nótt eða 24 tíma.

Pækill

2-3 lítrar vatn / 70 g matarsalt per lítra vatns.

1. Heill hvítlaukur skorinn eftir endilöngu með húð og öllu

2. 1 sítróna skorin í sneiðar

3. 2-3 greinar rosary (ferskur kóríander er líka góður)

4. Ca. 10–15 svört piparkorn

5. 2 súputeningar

6. Grillkrydd eftir smekk, allar blöndur góðar

Aðferð

-Setjið fuglinn í pott og hellið pæklinum yfir. Mikilvægt er að fuglinn sé allur á kafi í pækli. Gott er að setja farg á fuglinn.

-Geymið yfir nótt á sæmilega köldum stað, t.d. í grillinu.

-Þegar kemur að því að grilla fuglinn má nota sérstakar grillgrindur sem fuglinn situr á eða eldfast mót.

-Skerið niður kartöflur og sætar kartöflur í tommubita, gott er að hafa gróft skorinn rauðlauk og annað rótargrænmeti. Veltið öllu upp úr ólífuolíu og kryddið eftir smekk.

-Setjið grænmetið í botninn á mótinu, þerrið kjúklinginn og kryddið með salti og pipar eða annarri kryddblöndu. Setjið kjúklinginn ofan á grænmetið eða komið honum fyrir á grillgrindinni.

-Grillið við óbeinan hita í 1 og hálfan tíma. Passið að hitinn á grillinu fari ekki upp yfir 200°c, helst ca. 180-200°c. Safinn úr fuglinum lekur í grænmetið og gerir það gómsætt. Berið fram með salati. Með þessari aðferð verður fuglinn safaríkur og mjúkur.

-Látið fuglinn standa í 10–15 mínútur áður en hann er hlutaður niður.


Ég skora á Olgu Mörk Valsdóttur verksmiðjustjóra SS á Hvolsvelli að koma með eina til tvær góðar uppskriftir á grillið fyrir sumarið.

Nýjar fréttir