11.7 C
Selfoss

Getur list læknað með því að tengja saman huga og líkama?

Vinsælast

Listasafn Árnesinga og  Listasafn Íslands stóðu fyrir metnaðarfullu 2ja daga námskeiði fyrir sérfræðinga, dagana 20. og 21. maí.

Námskeiðið bar yfirskriftina Getur list læknað með því að tengja saman huga og líkama? Og leitt til aukinnar þátttöku, vellíðunar og inngildingar?

Námskeiðið var vel heppnað og færri komust að en vildu. Þátttakendur voru frá mismunandi stöðum úr samfélaginu; listamenn, kennarar, fræðslufulltrúar safna, iðjuþjálfar, sálfræðingar o.fl.

Markmiðið var að kynnast aðferðum sem efla tengsl huga og líkama í gegnum listsköpun. Einnig að auka skilning á áhrifum skapandi ferla og safnaheimsókna á vellíðan, sjálfstjáningu og félagslega þátttöku, sérstaklega hjá fólki með einhverfu eða fötlun.

Leiðbeinendur námskeiðsins voru Thomasine Giesecke og Pascale Chau-huu.

Thomasine Giesecke hefur 20 ára reynslu sem safnkennari við Musée d’Orsay og Musée de l’Orangerie í Frakklandi. Vinnustofur Thomasine leggja áherslu á snertingu og líkamsbundna sköpun, jafnvel fyrir þau sem upplifa sig oft jaðarsett í menningarrýmum. Hún talar fyrir því að list og söfn séu inngildandi, skynræn rými — staðir þar sem fólk getur eflt tenginguna við sjálft sig og öðrum á ný í gegnum einfaldan og læknandi kraft sköpunarinnar. Pascale Chau-huu lærði myndlist við  Marseille School of Fine Arts. Undanfarin ár hefur hún leitt listavinnustofur þar sem hún deilir reynslu sinni, auk þess sem hún vinnur að eigin listsköpun, allt frá málverkum, myndasögugerð og auglýsingahönnun til vefhönnunar og tæknibrellna í teiknimyndum.Thomasine og Pascale eru báðar búsettar í París en komu til landsins til að leiða námskeið.

Unnið var með fjölbreytt efni á borð við leir, stop-motion myndband og grafískar aðferðir. Æfingar í þrívídd og líkamsvitund með áherslu á sköpun sem leið til tengsla, skynjunar og vellíðunar. Kynningar og umræður um hvernig listaverkefni og safnaheimsóknir geta haft jákvæð áhrif á einstaklinga með einhverfu, m.a. með aukinni einbeitingu, sjálfstjáningu og þátttöku í hópastarfi.

Fjallað var um hvernig hægt er að aðlaga vinnustofur að ólíkum markhópum.

Námskeiðið veitti fagfólki verkfæri til að þróa vinnustofur og fræðsluverkefni fyrir fjölbreytta hópa. Verkefnið styrkir menningarlega þátttöku fólks sem stendur utan hefðbundins listalífs, eflir samkennd og tengsl milli hópa og undirstrikar mikilvægi listar í menntun, vellíðan og félagslegri inngildingu.

Verkefnið hlaut styrk frá Safnaráði og var samstarfsverkefni Listasafns Árnesinga og Listasafns Íslands.

Nýjar fréttir