Aðsókn að VISS Fríbúðinni hefur farið fram úr væntingum og verkefnið hefur orðið tákn um endurnýtingu og samfélagslega þátttöku
Í tæpt hálft ár hefur VISS Fríbúð verið opin í Félagsheimilinu á Flúðum og hefur frá fyrsta degi notið mikilla vinsælda hjá bæði heimamönnum og gestum sem hafa komið langar leiðir til að heimsækja hana.
VISS Fríbúð er markaður þar sem allt er ókeypis. Fólk getur komið með hluti sem það vill gefa áfram eða fundið eitthvað sem nýtist og gleður. Þar fá hlutir nýtt líf og nýjan eiganda í stað þess að enda sem úrgangur. Úrvalið breytist stöðugt eftir árstíðum og þörfum samfélagsins — allt frá barnafatnaði og heimilisvörum yfir í jólaskraut, bækur og ýmsa smámuni.
Verkefni sem skapar störf og styrkir samfélagið
Á bak við verkefnið stendur VISS vinnu- og hæfingarstöð sem hefur starfað á Flúðum frá árinu 2020 fyrir fólk með skerta starfsgetu. Þar er lögð áhersla á virðingu, stuðning og raunveruleg tækifæri til þátttöku í samfélaginu. Verkefnið sýnir hvernig hægt er að skapa fjölbreytt og mikilvæg störf með réttum stuðningi og um leið byggja upp betra og sjálfbærara samfélag.
Fríbúðin hefur því orðið meira en staður fyrir hluti — hún er orðin tákn um samvinnu, sjálfbærni og samfélag þar sem öll hafa hlutverk og skipta máli.
Verið velkomin í Félagsheimilið á Flúðum.
Fríbúðin Viss hefur sömu opnun og Félagsheimilið-bókasafn, Flúðum. Opið er mánudaga, þriðjudaga og fimmtudaga kl. 10–16, miðvikudaga 10–18 og föstudaga 12–15.
Móttaka hluta er í Viss á Flúðum sem staðsett er í kjallaranum á Heimalandi, Vesturbrún 16-20. Þar er opið á mánudögum og miðvikudögum kl. 8–15 og á föstudögum kl. 8–12.
Else Nielsen
Deildarstjóri VISS vinnu og hæfingastöð á Flúðum



