Listamenn í Hveragerði og víðar af suðurlandi koma nú fram úr fylgsnum sínum með hækkandi sól og sýna afrakstur sköpunar sinnar.
Ellefu listamenn, leikmenn og lærðir sýna á Bókasafninu í Hveragerði. Sýning listahópsins Handverk og hugvit undir hamri nefnist Tímamót og er tileinkuð 80 ára afmæli Hveragerðisbæjar. Verkin eru 30 talsins.
Svo ólík eru þau að helst má kalla sýninguna margréttað veisluborð. Keramik, málverk, útskurður, textílverk, ljósmyndir og fleira er til sýnis og má bjóða í verkin. Lang flest eru til sölu.
Ein skál úr keramik og silfri skipar sérstakan sess á sýningunni. Áþekk skál er nú á Bessastöðum og var nýlega færð forseta Íslands sem gjöf frá Hveragerði. Skálin á þessari sýningu er hins vegar gjöf listahópsins til bæjarins.

Sýningin er opin til 12. júní á Bókasafni Hveragerðis.
Sýnendur eru þær Guðbjörg Auðar Björnsdóttir, María Dröfn Þórhallsdóttir, Ólöf Bjarnadóttir, Hrönn Waltersdóttir, Linda Gísladóttir, Steinunn Aldís Helgadóttir, Ólöf Sæmundsdóttir, Guðrún Arndís Tryggvadóttir og Hafþór Ragnar Þórhallssson og Ólöf Sæmundsdóttir og Maia Irena.
„Hvert verk segir sýna sögu og saman mynda þau samtal milli fortíðar, nútíðar og framtíðar um samfélagið sem við búum í, tímann og sköpunarkraftinn sem í okkur býr,“ segir Hrönn. Allir séu velkomnir í félagið en nú þurfi stærra húsnæði.





