9.5 C
Selfoss

Lifandi menning og listir í skáldabænum Hveragerði

Vinsælast

Hveragerði er ekki aðeins þekkt fyrir yl, gróður og náttúrufegurð heldur einnig fyrir öflugt menningarlíf. Í litlu samfélagi hefur skapast einstakur jarðvegur fyrir listir, tónlist og samveru þar sem íbúar og gestir geta notið fjölbreyttrar menningar allt árið. Bæjarbragur Hvergerðinga einkennist af listrænni og skapandi starfsemi, sem tengir okkur öll saman og í aðallhlutverki er svo sannarlega fólkið sem býr í Hveragerði. Hér eru þó tækifæri til að efla sýnileika lista í Hveragerði og virkja menningarlífið enn frekar.

  • Tækifæri ungs fólks til listsköpunar

Það skiptir miklu máli fyrir framtíð listar og menningar í samfélaginu okkar að við hvetjum með virkjum hætti til öflugrar listrænnar nálgunar meðal barna, ungmenna og eldri með markvissu starfi. Við sjáum tækifæri í því að ungu fólki sé tryggt skapandi félagsumhverfi og tækifæri til eftirtektar og þátttöku í samfélaginu, eflingar á færni sinni og kynningar á fjölbreyttu atvinnulífi. Þessu má koma til leiðar  með margvíslegum hætti og við viljum í þessu augnamiði auka fjölbreytni starfa í vinnuskólanum með áherslu á skapandi og hagnýt verkefni, með þátttöku í listasmiðjum, götuleikhúsum og aðkomu að bæjarhátíðum. Þessu getum við komið til leiðar með auknu samstarfi við fyrirtæki, stofnanir og félagasamtök um störf og verkefni þar sem ungt fólk getur prófað sig áfram á mismunandi sviðum. Ekki síður er mikilvægt í þessu tilliti að tryggja áframhaldandi stuðning við fjölbreyttan vettvang fyrir samkomur og samveru ungs fólks í Hveragerði, til að mynda á vettvangi öfkulgs ungmennahúss.

  • Sköpum aðstæður til samstarfs og frumkvæðis

Við leggjum áherslu á hvatningu til samstarfs og frumkvæðis í menningarstarfi og að sköpuð verði hér öflug aðstaða fyrir listafólk. Það er mikilvægt að við styrkjum áfram menningar- og listalíf sem hluta sjálfsmyndar og aðdráttarafls bæjarins. Með þessu má gera listir og menningu meira áberandi í umhverfinu, bæði með listaverkum og menningarviðburðum. Efla má ásýnd með listaverkum á tómum veggjum, ljóðrænum setningum á óvæntum stöðum, nýtingu náttúrunnar í leik, sköpun upplifunargarða og samnýtingu nýsköpunar og lista í uppbyggingu miðbæjar.

Sum verkefni taka lengri tíma í uppbyggingu, en önnur verkefni þurfa einfaldlega hvatningu, styrki og eftir atvikum aðstöðu til að af þeim geti orðið.

Á kjörtímabilinu hefur verið unnið að því að festa í sessi rekstrargrundvöll menningar- og viðburðastarfsemi með beinum samstarfssamningum sem stuðningur bæjarins við verkefni til lengri tíma og það er mikilvægt að þeirri vegferð verði haldið áfram inn í komandi ár.

  • Mörkum stefnuna fyrir listir og menningu í uppbyggingu inn í framtíðina á okkar eigin forsendum sem samfélag

Samhliða uppbyggingu líflegs miðbæjarsvæðis getum við sem samfélag markað stefnuna á okkar eigin forsendum með lifandi listir, menningu og nýsköpun í forgrunni. Þannig getum við skapað umgjörð í miðbæ Hveragerðis fyrir blómlega menningu og lifandi listsköpun.

Til þess að tryggja umgjörð fjölbreyttrar listsköpunar og menningu þurfa markmiðin að vera skýr og aðlaðandi fyrir fjárfesta og uppbyggingaraðila. Gerum þessu skil sem hluta af samstarfsverkefnum í uppbyggingu Hverasvæðisins og endurbyggingar Egilsstaða. Einnig við nýtt miðbæjartorg. Tryggjum að þar fari saman fjölbreytt þjónusta og listsköpun.

Á meðan unnið er að uppbyggingu húsnæðis til listeflingar í Hveragerði er hægt að auðga enn frekar listræna ásýnd bæjarins strax. T.d. með aðkomu listamanna að listaþingi Hvergerðinga og frekari innleiðingu lista til æskunnar. Tökum vel utan um alla þætti menningar sem einkenna bæjarbrag Hvergerðinga og leggjum okkur fram við að hlusta á raddir listamannasamfélagsins.

Í fallega bænum okkar Hveragerði fær menningin að blómstra, fólk kemur saman og listirnar verða hluti af daglegu lífi. Það eru verðmæti sem við sem samfélag eigum að varðveita, styðja og vera stolt af.

Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir
Ívar Dagur B. Sævarsson
Guðjón Óskar Kristjánsson
Hrafn Andrés Harðarson
2., 5., 9. og 11. sæti á lista Okkar Hveragerðis 2026

Nýjar fréttir