Mánudaginn 4. maí hófst opnunarhringur sumarsins hjá Golfklúbbnum á Flúðum þegar fyrstu kylfingarnir gengu inn á sumarflatir Selsvallar. Það voru þeir Helgi Guðmundsson, Kristján Skarphéðinsson og klúbbmeistarinn Agnar Reiðar Róbertsson sem riðu á vaðið og settu tóninn fyrir komandi golfsumar.
Létt yfirbragð og eftirvænting einkenndu daginn enda greinilegt að sumarið er komið og kylfingar tilbúnir að taka fyrstu hringina. Sumarflatirnar eru tilbúnar, brautirnar að jafna sig eftir frostið og teigarnir farnir að taka vel við sér eftir veturinn.
Mikil vinna hefur farið fram síðustu daga hjá vallarnefnd og starfsfólki vallarins við að undirbúa völlinn fyrir opnun. Enn sem komið er eru það aðeins vinnubílar og tæki tengd rekstri sem mega fara um völlinn, en tilkynnt verður síðar hvenær almenn notkun golfbíla verður heimiluð.
Nýr rekstrarstjóri hóf einnig störf samhliða opnuninni. Einar Lárus Ragnarsson mun stýra skrifstofu klúbbsins og taka þátt í daglegum rekstri. Hann leggur áherslu á opið og aðgengilegt starfsumhverfi þar sem hugmyndir félagsmanna fá að njóta sín.

Líf og fjör er einnig farið að færast í golfskálann. Matreiðslumeistarinn Guðmundur Rúnar hefur opnað eldhúsið á ný og býður meðal annars upp á hlaðborð bæði í hádeginu og á kvöldin. Félagsmenn og gestir eru hvattir til að sameina góðan golfhring og heimsókn í skálann þar sem boðið verður upp á fjölbreyttar veitingar.
Ýmsar framkvæmdir hafa einnig verið unnar á svæðinu síðustu vikur. Græna brúin við 13. teig hefur verið sett á sinn stað, unnið er að endurnýjun þaks á golfskálanum og nýir íbúðargámar fyrir starfsfólk hafa verið settir upp við norðurenda skálans. Húsanefnd klúbbsins hefur því haft í mörg horn að líta á vormánuðum.
„Þetta er ekki bara nýtt tímabil, þetta er upphafið að einhverju miklu stærra heldur en bara frábærum púttum og týndum boltum,“ segir Ottó Leifsson, formaður Golfklúbbsins á Flúðum.



