8.9 C
Selfoss

Stærstu þungaflutningar landsins komnir á skrið

Vinsælast

Viðamiklir flutningar á vindmyllum fyrir Vaðölduver eru nú hafnir frá Þorlákshöfn og marka stærstu þungaflutninga sem ráðist hefur verið í hér á landi. Vindmylluhlutarnir eru fluttir sjóleiðina til hafnarinnar og þaðan um 130 kílómetra leið upp að Vaðölduveri við Sultartanga.

Alls verða 28 vindmyllur fluttar í tveimur áföngum árin 2026 og 2027. Hver vindmylla krefst um 13 sérleyfisflutninga og því er áætlað að heildarfjöldi ferða verði um 300–400. Flutningalestirnar geta orðið allt að 250 metra langar og stærstu hlutarnir, spaðarnir sjálfir, eru um 68 metrar á lengd.

Flutningarnir fara að mestu fram að næturlagi sex daga vikunnar til að draga úr áhrifum á almenna umferð. Lögregla og Vegagerðin stýra framkvæmdunum og víða hefur þurft að breikka vegi, styrkja gatnamót og undirbúa flutningsleiðina sérstaklega fyrir verkefnið.

Meðfylgjandi myndir eru frá fyrstu vindmylluflutningum. Ljósmyndir: Sveinn Bjarnason/Landsvirkjun.

default

default
default

Nýjar fréttir