Það styttist í kosningar og síðustu vikur hafa verið bæði annasamar og gefandi. Okkur langar á þessum tímamótum að staldra við og þakka öllum íbúum Hveragerðis fyrir hlýjar móttökur, góð samtöl og þann mikla og einlæga áhuga sem fólk sýnir samfélaginu okkar og framtíð þess.
Kosningabaráttur geta verið krefjandi en þær getur líka verið uppbyggilegar og lærdómsríkar fyrir frambjóðendur jafnt sem íbúa ef við mætum öll til leiks af virðingu og vinsemd. Okkur finnst við í Hveragerði hafa sýnt að hægt er að takast á um hugmyndir og framtíðarsýn bæjarins með jákvæðum og lýðræðislegum hætti.
Lýðræði snýst nefnilega ekki um að allir séu alltaf sammála. Þvert á móti felst styrkur þess í því að ólíkar skoðanir fái að heyrast, að tekist sé á um ágreiningsefni af hreinskilni og virðingu og að fólk geti lagt fram sín sjónarmið án þess að óttast sundrungu eða óvild. Þannig byggjum við upp lýðræðið í verki, bæði í samskiptum kjörinna fulltrúa sín á milli en ekki síður í samtalinu við íbúa í samfélaginu.
Okkur langar að þakka sérstaklega frambjóðendum annarra framboða fyrir góða og málefnalega framkomu. Vissulega leggjum við stundum mismunandi áherslur til grundvallar en við eigum það öll sameiginlegt að vilja Hveragerði allt hið besta. Það skiptir máli að við höldum áfram á þeirri braut næstu daga, með jákvæðni, heiðarleika og virðingu að leiðarljósi.
Við hjá Okkar Hveragerði erum áfram full af krafti, hugmyndum og vilja til góðra verka. Við trúum á áframhaldandi uppbyggingu samfélagsins okkar, á gott samstarf og opið samtal við íbúa. Það er með slíkri samvinnu, trausti og virkri þátttöku sem við byggjum enn betra samfélag fyrir okkur öll.
Takk fyrir stuðninginn, samtölin og traustið fram að þessu. Við höldum spennt inn í síðustu vikuna og hlökkum til áframhaldandi samstarfs við íbúa Hveragerðis um framtíð bæjarins okkar.
Bæjarmálafélagið Okkar Hveragerði hvetur alla íbúa til að kynna sér málefni allra framboða og kjósa með hjartanu á laugardaginn næsta.
Við erum öll að vinna fyrir ykkar hag!
Fyrir hönd frambjóðenda Okkar Hveragerðis
Lárus Jónsson, oddviti Okkar Hveragerðis
Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir, 2. sæti á lista Okkar Hveragerðis
Jónas Guðnason, 3. sæti á lista Okkar Hveragerðis




