4.7 C
Selfoss

Samstaða um framtíð hestamannafélagsins Ljúfs

Vinsælast

Dagur íslenska hestsins 1. maí var haldinn hátíðlegur með glæsibrag hjá Hestamannafélaginu Ljúf, þar sem sjónum var beint að einu stærsta hagsmunamáli félagsins, uppbyggingu reiðhallar.
Ljúfur, sem sameinar um 250 félagsmenn úr Hveragerði og dreifbýli Ölfuss, er eitt fárra hestamannafélaga landsins sem enn býr við þann veruleika að hafa hvorki reiðhöll né reiðskemmu á eigin svæði.

Starf félagsins hefur þó vaxið hratt undanfarin ár og æskulýðsstarf blómstrað. Sá árangur hefur náðst þrátt fyrir takmarkaða aðstöðu, meðal annars með dýrmætri aðstoð reiðhallareigenda í Ölfusi. Sú lausn er hins vegar ekki sjálfbær til lengri tíma og setur félagið í ákveðna pattstöðu þegar kemur að áframhaldandi uppbyggingu og vexti.

Margir af fremstu hestamönnum landsins, þar á meðal heimsmeistarar, koma úr heimabyggð Ljúfs. Aðstöðuleysi hefur hins vegar orðið til þess að þeir hafa í auknum mæli þurft að æfa og keppa fyrir önnur félög – staða sem undirstrikar mikilvægi þess að efla aðstöðuna heima fyrir.

Það sem vakti þó ekki síður athygli á deginum var sú fágæta og ánægjulega samstaða sem birtist í þátttöku allra sex framboða í Hveragerði og Ölfusi. Fulltrúar beggja sveitarfélaga komu saman á einum stað til að kynna sér málið og ræða hvernig efla megi sameiginlega hagsmuni svæðisins. Slík samkoma, þvert á sveitarfélagamörk og pólitískar línur, er sjaldséð og undirstrikar mikilvægi verkefnisins.

Að kynningu lokinni fengu frambjóðendur að heimsækja hesthús félagsmanna á Vorsabæjarvöllum í Hveragerði og kynnast starfseminni af eigin raun. Þar var augljóst að öflugt starf, metnaður og sterk félagsleg tengsl eru þegar til staðar – það sem vantar er aðstaðan til að styðja við áframhaldandi þróun.

Viðbrögð frambjóðenda voru jákvæð og allir flokkar lýstu yfir vilja til að styðja uppbyggingu reiðhallar á komandi kjörtímabili. Það er mikilvægt skref í rétta átt.

Næsta skref er að breyta þeim vilja í framkvæmd. Uppbygging reiðhallar er ekki aðeins fjárfesting í íþrótt – hún er fjárfesting í æskulýðsstarfi, heilsu og samfélagi. Dagurinn hjá Ljúfi sýndi skýrt að viljinn er til staðar. Nú þarf að láta verkin tala.

Greinarhöfundur er Margrét Polly Hansen, Byggðaþróunarfulltrúi neðri hluta Árnessýslu og félagsmaður Ljúfs. 

Nýjar fréttir