4.7 C
Selfoss

Innantóm loforð um hjúkrunarheimili

Vinsælast

Alma Möller heilbrigðisráðherra var gestur á fundi Samfylkingar og félaga um málefni eldra fólks í Ölfusi sem fór fram á miðvikudag sl. Hún hélt erindi um áherslur sínar og ríkisstjórnarinnar í málaflokknum og sagði meðal annars frá þjóðarátaki um uppbyggingu hjúkrunarheimila sem hefur verið á fleygiferð.

Eftir erindi hennar var opnað fyrir umræður og þar var hún spurð út í stöðuna á hjúkrunarheimili í Þorlákshöfn en stjórnvöld í Sveitarfélaginu Ölfusi hafa fullyrt að hjúkrunarheimili rísi í Þorlákshöfn. Svarið hennar var mjög skýrt. Þorlákshöfn er ekki á framkvæmdaáætlun um uppbyggingu hjúkrunarheimila og það hefur ekkert erindi borist frá Sveitarfélaginu Ölfusi eða ósk um viðræður þess efnis. Hún sagði jafnframt að það væri forsenda fyrir því að verkefni kæmist á framkvæmdaáætlun til ársins 2030 að sýnt væri fram á þörfina á hjúkrunarheimili og það væru oftar en ekki sveitarfélög sem gerðu það með erindi til ráðuneytanna, það er ríkið  sem greiðir fyrir þjónustuna með samningum við Sjúkratryggingar Íslands.

Í fréttatilkynningu frá 23. september 2025 þegar fullyrt var að hjúkrunarheimili rísi í Þorlákshöfn var jafnframt sagt að hjúkrunarheimilið væri ,,órjúfanlegur hluti af stærra þróunarverkefni sem nær einnig til uppbyggingar íbúðarhúsnæðis við Óseyrarbraut”. Þessi fullyrðing var svo hrakin á íbúafundi sem haldinn var um fasteignaverkefnið í október síðastliðnum, þegar aðilarnir á bakvið það voru spurðir beint út í það hvort rétt væri að hjúkrunarheimilið væri órjúfanlegur hluti af fasteignaverkefninu. Fyrirtækið gat ekki staðfest það.

Fasteignaverkerkefnið er virkilega umdeilt. Það á að byggja 155 íbúðir ofan í hafnarsvæðinu sem takmarkar verulega þróun þess og býður hættunni heim varðandi átök íbúa og atvinnusvæðis þegar kemur í ljós sem víst er, að það verði ekki hægt að búa svo nálægt umsvifamikilli inn- og útflutningshöfn með mikilli gámaumferð, svolítið eins og að byggja íbúðahverfi ofan í Sundahöfn. Íbúar í gamla hverfinu svo kallaða eru líka margir mjög ósáttir við þessa fyrirætlan.

Í Ölfusi eru 266 íbúðir á byggingarstigi samkvæmt Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og 174 íbúðir til sölu í Ölfusi dag og ljóst að ekki er þörf á að fara í þéttingarstefnu eins og þessa. Í Ölfusi er nóg af landsvæði.

Samfylkingin og félagar leggja áherslu á samstarf sem hefur skort verulega á síðustu ár hjá meirihluta Sjálfstæðisflokks. Það er einlægur vilji okkar að hjúkrunarheimili rísi í Þorlákshöfn og við ætlum að beita okkur fyrir því í góðu samstarfi við ríkið. Þá ætlum við líka að koma í veg fyrir að þrengt verði að höfninni með þessu skipulagsslysi sem er í uppsiglingu hjá Sjálfstæðisflokknum.

Gunnsteinn R. Ómarsson, oddviti Samfylkingar og félaga
Berglind Friðrikisdóttir, 2. Sæti
Pálmi Þór Ásbergsson, 3. Sæti
Bryndís Sigurðardóttir, 4. sæti

Nýjar fréttir