Hildigunnur Kristinsdóttir er sunnlenski matgæðingur vikunnar.
Takk elsku Linda mín fyrir áskorunina og þessi fallegu orð. Ætli ég skelli ekki fram einni af minni uppáhalds uppskrift þessa dagana. Upphaflega uppskriftin heitir Marry me chicken en ég er að sjálfsögðu búin að breyta henni og aðlaga að mér. Ég er slumpari og dassari mikill, en kýs að kalla það að smakka til, svo endilega breytið eða smakkið að ykkar matarsmekk.
Set svo með hættulega gott nammi, dumlegott.
Kjúklingaréttur
3-4 kjúklingabringur
3 skarlottulaukar
3 hvítlauksrif
3 dl kjúklingasoð (vatn og kjúklingateningur)
½ l rjómi
½ krukka sólþurrkaðir tómatar
½ krukka rautt pestó
1 piparostur, rifinn niður
2 lúkur spínat
Fersk basilíka, eftir smekk
1 sítróna
Olía, smjör, salt og pipar
Byrjið á að hita olíu og smjör á pönnu, skerið kjúklingabringurnar í bita, saltið og piprið þær og steikið á pönnunni. Þegar kjúklingurinn er tilbúinn, þá takið þið hann til hliðar.
Skerið lauk og hvítlauk smátt og steikið á pönnunni, gott að setja smá meira smjör með. Hellið svo kjúklingasoðinu á pönnuna og látið þetta malla í smá stund. Þá bætið þið rjóma, niðurskornum sólþurrkuðum tómötum, spínati, rifna piparostinum á og hrærið saman þar til osturinn er um það bil bráðnaður.
Blandið kjúklingabitunum svo saman við. Látið malla í 10-15 mínútur eða á meðan sósan þykknar aðeins. Smakkið til með því að salta og pipra.
Takið svo pönnuna af hitanum, rífið sítrónubörk og stráið yfir, kreistið sítrónusafa yfir og blandið saman. Endið á að setja smá ferska basilíku yfir.
Tillaga að meðlæti:
Mjög gott að hafa pasta, hvítlauksbrauð og fersk salat með.
Hér er svo uppskrift af allt of góðu nammi, ef maður fær sér bita er varla hægt að hætta.
Dumlegott
360g dumle karamellur
130g smjör
200g fylltar lakkrísreimar
100g kornflex, mulið
200g rjómasúkkulaði
200g suðusúkkulaði
Bræðið karamellur og smjör saman í potti, klippið lakkrísinn niður, myljið kornflexið og bætið í pottinn. Setjið smjörpappír í form og hellið karmellublöndunni í, þjappið niður. Setjið súkkulaðiplöturnar ofan á og lokið, þegar súkkulaðið er bráðnað dreifið þá úr því yfir allt og kælið eða frystið. Skera svo í bita og njóta.
Verði ykkur að góðu.
Ég skora á Stínu mína, Kristínu Sveinsdóttur, til að koma með einhverja geggjaða uppskrift fyrir okkur næst en hún hefur bjargað mér oftar en einu sinni þegar ég held veislur og það er alltaf hægt að stóla á hana.



