9.5 C
Selfoss

Börnin í forgang

Vinsælast

Menntamál eru eitt af mikilvægustu verkefnum sveitarfélaganna. Ekki aðeins af því að þau eru með stærstu útgjaldaliðum heldur vegna þess að í gegnum þau leggjum við grunn að næstu kynslóðum og við leggjum grunn að því samfélagi sem byggist upp í sveitarfélaginu.

Góðir leik- og grunnskólar eru hjarta allra sveitarfélaga. Um þá starfsemi hverfist búseta. Án þeirra koma ekki nýjar barnafjölskyldur og fólk byggir síður upp líf sitt til lengri tíma. Við höfum séð það gerast í öðrum sveitarfélögum að þegar skólastarf veikist eða hverfur þá fer að fjara undan samfélaginu.

Við erum hins vegar í þeirri stöðu að vera stækkandi sveitarfélag og það er tækifæri sem við þurfum að nýta vel. A-listinn er því með uppbyggingu á skólamálum á sinni stefnuskrá. Við erum stækkandi sveitarfélag með stækkandi þéttbýliskjarna ásamt öðrum búsetuúrræðum um allt sveitarfélagið og við þurfum að geta tekið á móti því fólki sem að kemur til að búa í sveitarfélaginu, byggja það upp og vera hluti af samfélaginu.

Með aukinni uppbyggingu og fjölgun íbúa verður þörfin fyrir stærri leik- og grunnskóla sífellt meiri. Það er mikilvægt að við séum ekki alltaf skrefi á eftir heldur undirbúum okkur tímanlega og tökum ákvarðanir sem standast til lengri tíma.

A-listinn leggur áherslu á að ráðast í stækkun leikskólans á þessu kjörtímabili sem mun um leið skapa meira rými í grunnskólanum. Það er nauðsynlegt til að mæta þeirri jákvæðu þróun sem við erum að sjá.

Barnafjölskyldur eru lykillinn að áframhaldandi uppbyggingu og þess vegna þurfum við að horfa á málin í stærra samhengi en bara húsnæði og pláss. Við þurfum að skapa aðstæður sem gera daglegt líf fjölskyldna einfaldara og betra. Eitt af því sem skiptir fjölskyldur miklu máli er aðgengi barna að íþrótta- og tómstundastarfi. Í dreifðu sveitarfélagi getur það verið áskorun. A-listinn vill skoða möguleika á frístundaakstri svo öll börn, óháð búsetu, hafi jafnan aðgang að íþróttum og tómstundum. Við munum einnig leggja áherslu á að halda leikskólagjöldum í lágmarki og áfram tryggja fríar skólamáltíðir fyrir öll börn.

Við viljum líka skoða hvernig við getum stutt betur við foreldra yngstu barnanna. Þar kemur til greina að meta möguleika á heimgreiðslum sem geta aukið valfrelsi fjölskyldna og gefið þeim svigrúm til að haga fyrstu árunum með börnin sín á þann hátt sem hentar best.

Við viljum einnig horfa til þess hvernig við nýtum og eflum skólaþjónustu. Þar skiptir máli að skoða samstarf innan Skólaþjónustu Árnesþings og hvernig við getum styrkt þjónustuna sem okkar skóli fær. Með aukinni aðkomu sérfræðinga getum við betur mætt ólíkum þörfum nemenda og stutt bæði börn, foreldra og starfsfólk í daglegu starfi.

Til þess að halda áfram að byggja upp sterkt samfélag þurfum við líka að horfa út á við. Það skiptir máli hvernig við kynnum sveitarfélagið og hvaða skilaboð við sendum. Við viljum leggja meiri áherslu á markaðssetningu sem nær til fjölskyldufólks með börn og sýnir þá kosti sem felast í því að búa hér.

Í allri þessari vinnu skiptir samtalið mestu máli. Menntamál snúast ekki bara um kerfið sjálft heldur snúast þau um daglegt líf fólks. Fyrir börn og foreldra skipta þau máli á hverjum degi. Hvernig börnunum líður, hvort þau fá þann stuðning sem þau þurfa og hvort umhverfið í kringum þau sé öruggt og uppbyggilegt. Þess vegna skiptir máli að hlusta á íbúana og eiga raunverulegt samtal um skólamálin.

A-listinn leggur áherslu á stuðning við börn, foreldra og starfsfólk skólanna. Þau þekkja best hvað virkar og hvað má bæta. Við í sveitarfélaginu getum verið hreykin af öflugu skólastarfi í Kerhólsskóla og mikilvægt er að halda í og styrkja þann góða mannauð sem er til staðar.

Við í A-listanum viljum áfram byggja upp skólastarf sem við getum verið stolt af og skapa samfélag þar sem fjölskyldur vilja búa. Þar sem börn fá að blómstra og þar sem horft er til framtíðar með ábyrgum og skynsömum hætti.

Rebekka Lind Guðmundsdóttir
2. sæti framboðs A-listans í Grímsnes- og Grafningshreppi

Nýjar fréttir