Þið hafið kannski heyrt lofsöng meirihlutans um sjálfan sig sem ómað hefur úr ráðhúsi Árborgar síðustu daga. En ef grannt er hlustað, má heyra falskar nótur.
Síðasta sumar lögðu íbúar Árborgar sinn eigin pening, sparnað og jafnvel lífeyri í að færa sveitarfélaginu 1,5 milljarða í tekjur til að rétta af skuldir. Þetta er ljóst núna þegar fyrir liggur ársreikningur sveitarfélagsins fyrir 2025.
„Nauðsynleg aðgerð“
Við sem hér búum og fylgjumst með vitum að fjárhagsstaða sveitarfélagsins hefur ekki verið góð. Síðasta sumar var lagt álag á útsvar afturvirkt fyrir árið 2024 sem var, og ég vitna í tilkynningu frá meirihlutanum,aðgerð „nauðsynleg til að tryggja rekstrarhag“. Skuldastaðan var jú ein sú hæsta á landsvísu. Ekki skipti máli hvort einhver var nýfluttur í sveitarfélagið þetta sumar eða hafði búið hér alla sína tíð, það áttu allir íbúar sveitarfélagsins 18 ára og eldri að taka upp veskið og fyrirtæki sömuleiðis.
Gæðaskref
En var þetta nauðsynleg aðgerð til að tryggja rekstrarhag? Þrátt fyrir að hér séu fasteignagjöld í hæstu hæðum var krafan samt á okkur íbúa að borga enn meira til að laga stöðuna. Þetta var fljótleg og skilvirk leið, um það verður ekki deilt, en nauðsynleg var hún ekki.
Í stað þess að leggja álögur á íbúa er hægt er að endurskipuleggja skuldir og taka önnur skref að aukinni gæðastýringu á fjármálum. Þetta eru tímafrekar aðgerðir á kostnað uppbyggingu og innviða. En síðasti kostur hlýtur alltaf að vera að láta íbúa bera uppi sveitarfélagið með auknum gjöldum.
Skuldir Árborgar voru baggi sem íbúar áttu ekki að þurfa að bera. Ábyrgðin lá hjá kjörnum fulltrúum. Árangurinn er allur íbúum sveitarfélagsins að þakka.
Syngið það sem víðast.
Heiðrún Kristmundsdóttir
Oddviti Viðreisnar í Árborg



