Rekstur Sveitarfélagið Árborg styrktist verulega á síðasta ári og skilaði sveitarfélagið einni bestu rekstrarniðurstöðu í fjölda ára. Þetta kemur fram samkvæmt fréttatilkynningu frá Sveitarfélaginu Árborg vegna ársreiknings 2025 sem lagður var fram í bæjarstjórn í síðustu viku.
Rekstrarniðurstaða A- og B-hluta sveitarfélagsins var jákvæð um 1.497 milljónir króna en áætlanir höfðu gert ráð fyrir aðeins 67 milljóna króna afgangi. Þá var rekstrarniðurstaða A-hluta jákvæð um 620 milljónir króna þrátt fyrir að gert hefði verið ráð fyrir rúmlega hálfs milljarðs króna halla.
Samkvæmt fréttatilkynningunni má rekja þessa jákvæðu niðurstöðu meðal annars til ábyrgrar fjármálastjórnar, hagræðingaraðgerða síðustu ára, fjölgunar íbúa og aukinna framlaga úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Lausafjárstaða sveitarfélagsins hefur jafnframt styrkst, handbært fé jókst um nærri einn milljarð króna milli ára og skuldaviðmið lækkaði niður í 108,8 prósent.
„Niðurstaða ársreikningsins er mjög ánægjuleg og vil ég óska íbúum, starfsmönnum og kjörnum fulltrúum til hamingju með árangurinn. Það er ánægjulegt að erfiðar aðgerðir undanfarin þrjú ár sem hafa verið þungar fyrir okkur íbúa skili árangri á skemmri tíma en áætlað var,“ segir Bragi Bjarnason í tilkynningunni.
Í fréttatilkynningunni kemur einnig fram að íbúafjöldi í Árborg hafi verið 12.671 í ársbyrjun 2026 og hafi fjölgað um 697 á einu ári. Starfsmenn sveitarfélagsins eru um 1.160 talsins í um 860 stöðugildum.
Ársreikningurinn var lagður fram til staðfestingar í bæjarráði þann 22. apríl og vísað til fyrri umræðu í bæjarstjórn sama dag.



