11.1 C
Selfoss

Spennan magnast í Æsku Suðurlands

Vinsælast

Annað mót í mótaröðinni Æska Suðurlands fór fram á sunnudag í reiðhöll Eldhesta í Ölfusi þar sem keppt var í fjórgangi barna, fimmgangi unglinga og ungmenna auk hindrunarstökks í öllum flokkum. Um 60 skráningar bárust og var góð stemning á mótinu.

Að loknum fjórum greinum er staðan óbreytt í unglingaflokki, þar sem Anna Sigríður Erlendsdóttir heldur forystu með 36 stig. Talía Häsler fylgir á eftir með 25 stig og Sigurrós Mábil Hjaltested er í þriðja sæti með 24 stig.

Í barnaflokki hefur orðið breyting á toppnum en Sigrún Freyja Einarsdóttir er komin í efsta sæti með 29 stig, skammt á undan Kötlu Dís Hannesdóttur með 28 stig. Eva Dögg Maagard Ólafsdóttir er í þriðja sæti með 21 stig.

Í ungmennaflokki er einnig ný forysta, þar sem Vigdís Anna Hjaltadóttir leiðir með 26 stig. Hulda Vaka Gísladóttir er með 30 stig og Sigrún Björk Björnsdóttir er einnig með 26 stig, og því ljóst að spennan er mikil þegar tvær greinar eru eftir.

Næsta mót fer fram á Brávöllum á Selfossi þann 26. apríl þar sem keppt verður í tölti, auk mjólkurtölts í öllum flokkum og pollatölts fyrir yngstu knapana. Skráning og nánari upplýsingar verða birtar á Facebook-síðu Æsku Suðurlands þegar nær dregur.

Nýjar fréttir