11.1 C
Selfoss

Er opna bókhaldið lokað hjá Árborg?

Vinsælast

Kosningar eru mikilvægur viðburður í hverju lýðræðissamfélagi. Undirbúningur kosninganna felst í almennri umræðu um málefni bæjarins auk þess sem framboðin kynna sig og sína afstöðu til mála. Það eru ekki eingöngu sæti við bæjarstjórnarborðið sem eru laus heldur líka sæti í hinum ýmsu nefndum og ráðum sem bæjarstjórn skipar í. Þeim er skipt á milli framboða í hlutfalli við fylgi þeirra.

Nú eru öll ellefu sætin í Bæjarstjórn Árborgar laus og tækifæri til endurnýjunar, þannig virkar lýðræðið. Hæfileg útskipti og endurnýjun fulltrúa er skynsamleg á sama hátt og að skipta um mold á blómunum okkar. Þau þurfa nýjan jarðveg eigi þau að geta vaxið og dafnað.

Við í Viðreisn viljum vinna með opna stjórnsýslu, hafa auðvelt aðgengi bæjarbúa að því að fylgjast með málefnum og ákvörðunum. Nú á tímum stafrænna lausna er það auðvelt úrlausnarefni.

Svo virðist hins vegar sem núverandi bæjarstjórnarmeirihluti deili ekki með okkur áhuga á opinni stjórnsýslu.

Viðreisn leitaði eftir því að fá stjórnendur úr bæjarkerfinu til að hafa framsögur á opnum málefnafundum framboðsins með almenningi til undirbúnings fyrir kosningar. Bæjarstjórinn stoppaði það af með þeim rökum að hann væri að ,,gæta jafnræðis við öll framboð“ eins og hann orðaði það og sagði: ,,Það er því ekki gert ráð fyrir að stjórnendur sveitarfélagsins mæti með kynningar á einstaka fundi framboða.“

Sem mótvægi við þessa höfnun var frambjóðendum boðið á fund í ráðhúsinu þar sem sviðsstjórarnir þrír héldu erindi og gerðu það vel. En almenningi var ekki boðið. Jafnræði bæjarstjórans kristallast svo í því að hann, æðsti embættismaður bæjarins mætir á alla fundi D listans.

Annað dæmi um áhugaleysi meirihlutans á opinni umræðu er að opna bókhaldinu á vef bæjarins virðist hafa verið lokað. Það hefur ekki verið uppfært síðan 7. júní á síðasta ári. Nú er apríl að verða liðinn, þarna eru því tæplega ársgamlar upplýsingar fyrir áhugasaman almenning að skoða.

Við viljum gera betur.

Ingunn Guðmundsdóttir,
skipar 5. sæti á lista Viðreisnar

Nýjar fréttir