Leik- og grunnskólar eru meðal mikilvægustu stoða hvers samfélags. Þar hefst menntaferð barna, þar mótast sjálfstraust þeirra, félagsfærni og framtíðarsýn. Þessi fyrstu skólaár skipta sköpum, ekki aðeins fyrir hvert barn heldur samfélagið allt.
Skólaganga barns er samfellt ferli þar sem leikskólinn leggur grunninn og grunnskólinn byggir ofan á hann. Því er mikilvægt að líta á þessi skólastig sem eina heild. Þau eru ekki aðeins staðir þar sem börn dvelja á daginn eða tileinka sér staðreyndir, heldur vettvangur þar sem þau læra að lifa og starfa með öðrum, takast á við áskoranir og verða virkir þátttakendur í samfélaginu.
Til þess að börn geti notið sín þarf skólaumhverfið að vera öruggt, hlýlegt og hvetjandi. Þegar barn finnur að það tilheyrir, að á það sé hlustað og að það skipti máli, skapast bestu forsendur fyrir nám og þroska.
Góður skóli er öflugt jöfnunartæki
Eitt mikilvægasta hlutverk skóla er að tryggja jöfn tækifæri sem gerir öllum börnum kleift að njóta hæfileika sinna, óháð efnahag, uppruna eða aðstæðum heima fyrir. Þar á hvert barn að fá tækifæri til að blómstra á sínum eigin forsendum.
Það eru kennarar og starfsfólk skólanna sem gera þetta mögulegt. Þeirra framlag er ómetanlegt. Metnaðarfullt starfsfólk sem fylgist með nýjungum, notar fjölbreyttar kennsluaðferðir og hvetur nemendur til gagnrýninnar hugsunar skapar skóla þar sem börn fá að vaxa og dafna.
Sveitarfélagið okkar er í vexti og því þarf að horfa fram á veginn. Fjölgun íbúa kallar á sterka og nútímalega innviði. Nú er tímabært að huga að byggingu nýs leikskóla og tryggja að grunnskólinn hafi svigrúm til að mæta framtíðinni. Það dugar ekki að bregðast við þegar vandinn er orðinn að veruleika. Við þurfum að skipuleggja framtíðina núna.
Við uppbyggingu skólamannvirkja skiptir máli að hlustað sé á þá sem þekkja starfið best. Kennarar og annað starfsfólk þurfa að koma að borðinu frá upphafi. Arkitektar og verkfræðingar hanna húsnæði, en þeir sem starfa í skólunum daglega vita hvernig best er að skapa gott námsumhverfi.
Sveitarfélag í fararbroddi
Grímsnes- og Grafningshreppur hefur alla burði til að vera í fararbroddi þegar kemur að menntun og þjónustu við barnafjölskyldur. Með skýrri framtíðarsýn, ábyrgri stjórnun og markvissri uppbyggingu getum við orðið fremstir meðal jafningja.
Öflugir leik- og grunnskólar eru ekki kostnaður heldur fjárfesting. Fjárfesting í börnum, fjölskyldum og framtíð samfélagsins. Þar hefst menntun til framtíðar.
Þess vegna býð ég mig fram fyrir Betri sveit – fyrir okkur öll.
Ragna Ívarsdóttir,
skipar 2. sætið á Ö-lista í Grímsnes- og Grafningshreppi




