8.4 C
Selfoss

Barokk og bresk tónlist í Skálholti

Vinsælast

Strengjasveitin Spiccato heldur tónleika í Skálholtsdómkirkjunni laugardaginn 25. apríl næstkomandi klukkan 16:00. Á tónleikunum verður boðið upp á flotta dagskrá þar sem barokktónlist mætir breskum meistaraverkum, en á efnisskránni eru Fiðlukonsert í E-dúr eftir Johann Sebastian Bach, Konsert fyrir strengi í A-dúr eftir Antonio Vivaldi, Simple Symphony eftir Benjamin Britten og Fantasía um stef eftir Tallis eftir Ralph Vaughan Williams. Tóntegund verka á efniskrá eru E-A-D-G, sem eru einmitt eins og strengir fiðlunnar.

Strengjasveitin Spiccato var stofnuð árið 2012 af hópi hljóðfæraleikara sem vildu skapa vettvang til að flytja strengjatónverk, sérstaklega frá barokktímanum. Sveitin vinnur eftir lýðræðislegum vinnubrögðum þar sem enginn einn stjórnar, heldur skiptast meðlimir á skoðunum um túlkun á æfingum og fá allir tækifæri til að koma fram sem einleikarar. Konsertmeistari sveitarinnar er Martin Frewer.

Á þeim rúmlega tólf árum sem sveitin hefur starfað hefur hún haldið tuttugu og fimm tónleika, en þeir hafa flestir farið fram í Reykjavík til þessa. Það er því tilvalið tækifæri fyrir tónlistarunnendur á Suðurlandi að njóta tónlistarflutnings í hljómburði dómkirkjunnar, en aðgangur að tónleikunum er ókeypis.

Nýjar fréttir