Þann 2. apríl síðastliðinn var stór og merkilegur dagur í okkar fjölskyldu, því amma náði 100 ára aldri. Það er engum gefið að ná slíkum aldri og við fjölskyldan erum óendanlega þakklát fyrir að fá að fagna þessum áfanga með henni en við komum öll saman með henni á föstudaginn langa og áttum afskaplega góðan dag saman.

Amma, Gíslína Sumarliðadóttir, fæddist á Grettisgötunni í Reykjavík 2. apríl 1926. Hún ólst upp á Hverfisgötu 104a, í húsi sem langafi reisti. Hún og afi, Guðbjartur Jónsson, kynntust svo fyrir austan fjall á árunum 1947–1948. Amma hafði þá farið að vinna sem kaupakona á Vorsabæjarhól í Gaulverjabæ, en afi starfaði við mjólkurflutninga fyrir Mjólkurbú Flóamanna. Þau hófu sambúð og giftu sig árið 1949. Fyrstu árin bjuggu þau í Reykjavík á Hverfisgötunni.
Skömmu eftir 1950 fékk afi vinnu á Selfossi við Ferðaskrifstofu Kaupfélagsins og fluttu þau þá austur og settust þar að. Lengst af áttu þau heimili á Víðvöllum 11, húsi sem þau byggðu árið 1963. Þar átti ég síðar margar dýrmætar stundir með afa og ömmu.
Amma og afi eignuðust fjögur börn:
- Guðrúnu, f. 1950 (mamma)
- Sumarliða (Dengsa), f. 1952
- Hjördísi, f. 1957
- Jón Ara, f. 1965
Amma hefur alla tíð verið ákveðin og fylgin sér, en ekki síður glaðvær, hlý, réttsýn og trygg sínu fólki. Hún starfaði lengst af hjá Mjólkurbúi Flóamanna, mest við þrif og veisluhald á vegum þess. Þegar afi féll frá árið 1992 var það auðvitað mikið áfall, enda hafði hún treyst mikið á hann í gegnum tíðina. Sem dæmi um það hafði hún aldrei keyrt og ekki með bílpróf, en hún sýndi ótrúlegan viljastyrk og tók bílprófið 66 ára gömul. Eftir það ók hún um árabil. Hún vann í mjólkurbúinu allt til 70 ára aldurs og hafði gengið iðulega til vinnu áður en hún fékk bílprófið.

Amma hefur alla tíð verið heilsuhraust og tileinkað sér hóflegt og heilbrigt líferni. Hún fór reglulega í sund og synti mikið og gekk líka talsvert. Vinir mínir frá unglingsárunum trúðu oft varla að hún væri amma mín, svo ungleg og hress sem hún var.
Afkomendur ömmu og afa eru í dag um 44 talsins og fer fjölgandi. Amma býr nú á Sólvöllum á Eyrarbakka og unir hag sínum vel, þótt heilsan og minnið hafi farið að gefið eftir í seinni tíð. Hún ber sig samt alltaf vel og er jákvæð og bræðir alla með sínu fallega brosi. Það er aðdáunarvert og amma hefur verið okkur öllum sem fyrirmynd og við erum stolt af henni og þakklát fyrir að fá að eiga hana að. Við óskum henni innilega til hamingju með þennan stórkostlega áfanga.
Með ást og þakklæti – fyrir hönd fjölskyldunnar – Guðbjartur Örn Einarsson (Össi)
Fjölskyldumyndir teknar í afmælisveislunni með Gíslínu:



