0.6 C
Selfoss

Mótun Nýsköpunarstefnu Suðurlands

Vinsælast

Þriðja vinnustofan um mótun Nýsköpunarstefnu Suðurlands fór fram í Háskólafélagi Suðurlands 23. mars. Þar var áhersla lögð á að fara dýpra í helstu viðfangsefni, móta aðgerðir og ræða leiðir til að vinna gegn þeim hindrunum sem hafa áhrif á nýsköpun í landshlutanum.

Í umræðum vinnuhópa, sem skipaðir voru fulltrúum úr atvinnulífi, stofnunum og sveitarfélögum, kom skýrt fram að Suðurland stendur á tímamótum. Hröð fólksfjölgun, breytt samsetning samfélagsins og ríkulegar auðlindir svæðisins skapa margvísleg tækifæri til framtíðar. Rætt var um að til þess að byggja upp sterkt samfélag sé mikilvægt að menntun sé aðgengileg sem uppfyllir þarfir atvinnulífsins og markviss nýsköpun.

Þar voru meðal annars nefnd landbúnaður, orkuframleiðsla, landeldi og uppskipun sem öflugur grunnur að frekari verðmætasköpun. Eitt af því sem þátttakendur lögðu sérstaka áherslu á var skortur á menntuðu og sérhæfðu starfsfólki á Suðurlandi í einstökum atvinnugreinum. Fram kom að efla þurfi aðgengi að háskólamenntun og skapa betri forsendur til að laða að og halda í þjálfað fagfólk á svæðinu.

Gestir frá Akureyri, fulltrúar Drift EA, voru viðstödd vinnustofuna en Háskólafélag Suðurlands og Drift EA undirbúa nú samstarf, með stuðningi SASS í gegnum Sóknaráætlun Suðurlands, um nýtt verkefni sem ætlað er að efla nýsköpun og þróun innan starfandi fyrirtækja á Suðurlandi.

Að lokinni vinnustofunni heimsóttu fulltrúar Háskólafélags Suðurlands og Drift EA nokkur fyrirtæki á Suðurlandi, þar sem samtalinu um tækifæri og áskoranir í sunnlensku nýsköpunarumhverfi var haldið áfram.

Nýjar fréttir