0.6 C
Selfoss

„Lögin hans Valgeirs“ á Skírdag í Eyrarbakkakirkju

Vinsælast

Tónleikar með lögum Valgeirs Guðjónssonar úr öllum áttum verða haldnir á skírdag þann 2. apríl í Eyrarbakkakirkju og hefjast þeir klukkan 16.

Þetta verður sannkölluð huggustund í anda páskanna þar sem hlýja og gleði umvefja gesti.

Þau Kristrún Steingrímsdóttir frá Kálfholti og eiginmaður hennar Joel Christopher Durksen sem er frá Kanada ætla að flytja valin sýnishorn úr smiðju meistara Valgeirs. Hann sjálfur tekur sér hlé frá „ störfum“ að þessu sinni, en veit að lög hans verða flutt af næmni og gleði.

Kristrún Steingrímsdóttir og Joel Christopher Durksen. Mynd: Aðsend.

Kristrún og Joel hafa leikið með Valgeiri lög hans jafnt á íslensku sem á ensku í um tvö ár og tengst þeim í hugum og hjörtum. Þau eru einstakt tónlistarfólk og flytjendur sem hrifið hafa mann og annan í flutningi sínum.

Gestir mega búast við að þau komi víða við svo það er bara hægt að hlakka til.
Eiginkona Valgeirs Ásta Kristrún mun taka á móti gestum og fara nokkrum orðum um tilurð sumra laganna sem hún þekkir út og inn eftir 50 ára búskap þeirra Bakkastofu hjóna.

Rauða húsið sem er við Gamla torgið eins og kirkjan, hefur sett saman léttan matseðil fyrir gesti sem vilja fá sér hressingu fyrir eða eftir tónleikana.

Kirkjan opnar kl 15:30 og miðsala fer fram á tix.is.

Nýjar fréttir