4.5 C
Selfoss

D-listinn í Árborg kynntur

Vinsælast

Sjálfstæðisflokkurinn í Árborg kynnti á laugardaginn sl. nýsamþykktan framboðslista sinn að afloknum fundi fulltrúaráðs sjálfstæðifélaganna í sveitarfélaginu. Listinn samanstendur af einstaklingum með fjölbreyttan bakgrunn, reynslumiklum einstaklingum og þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref á vettvangi sveitarstjórnarmála. Sérstakt ánægjuefni er hversu mikið af ungu fólki tekur sæti á listanum.

Listinn er skipaður eftirfarandi:

  1. Bragi Bjarnason, bæjarstjóri
  2. Sveinn Ægir Birgisson, formaður bæjarráðs
  3. Linda Björk Hilmarsdóttir, framkvæmdastjóri
  4. Brynhildur Jónsdóttir, forstöðuþroskaþjálfi og bæjarfulltrúi
  5. Þórhildur Ingvadóttir, umsjónarm. Lyfju og varabæjarfulltrúi
  6. Kjartan Björnsson, rakari og forseti bæjarstjórnar
  7. Sigurbjörg Guðmundsdóttir, laganemi
  8. Sigríður Ósk Harðardóttir, rekstrarfulltrúi
  9. Gísli Rúnar Gíslason, kennaranemi
  10. Esther Ýr Óskarsdóttir, lögfræðingur
  11. Ívar Marinó Lillendahl, læknir
  12. Björg Agnarsdóttir, mannauðs- og launasérfræðingur
  13. Þorvaldur Þórðarson, eldfjallafræðingur
  14. Margrét Anna Guðmundsdóttir, félagsráðgjafi
  15. Alexander Már Egan, þjónustufulltrúi
  16. Embla Líf Guðmundsdóttir, umönnun
  17. Olga Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri
  18. Atli Dagur Guðmundsson, nemi
  19. Jóhann Jónsson, framkvæmdastjóri
  20. Andri Hrafn Hallsson, tannlæknir
  21. Júlía Katrín Sigmundsdóttir, háskólanemi
  22. Ari Thorarensen, fangavörður

„Ég er ótrúlega stoltur af því að leiða þennan góða, öfluga og skemmtilega hóp inn í sveitarstjórnarkosningarnar í vor. D-listinn í Árborg vill vinna áfram að hagsmunum íbúa í Sveitarfélaginu Árborg og við hlökkum til að eiga samtöl við íbúa á næstu vikum um málefni samfélagsins.“ Sagði Bragi Bjarnason, oddviti listans af þessu tilefni.

Nýjar fréttir