-6.1 C
Selfoss

Líf og list á bókasafninu

Vinsælast

Kvennasaga, sköpun og samvera í brennidepli

Á liðnum mánuðum hefur Héraðsbókasafn Rangæinga staðið fyrir fjölbreyttum og vel heppnuðum viðburðum þar sem áhersla var lögð á stöðu og baráttu kvenna, skapandi starf og samveru í samfélaginu. Viðburðirnir voru hluti af samstarfsverkefninu Læsi á stöðu og baráttu kvenna í tilefni Kvennaárs 2025. Bókasafnssjóður veitti styrk til verkefnisins.

Nemendur skapa og miðla kvennasögu

Í samstarfi við Hvolsskóla tóku nemendur á öllum aldursstigum þátt í metnaðarfullu verkefni byggðu á bókinni „Ég þori! Ég get! Ég vil!“ eftir Lindu Ólafsdóttur. Yngri nemendur kynntu sér efnið í gegnum lestur og umræður, en eldri nemendur unnu skapandi verkefni sem endurspegluðu hugmyndir þeirra um réttindi og stöðu kvenna.

Sérstaka athygli vakti vinna nemenda í 7. bekk sem söfnuðu heimildum og bjuggu til klippimyndir um ólík tímabil í kvennabaráttu á Íslandi. Úr varð kvikmyndakassi sem sýndur var á Njálu-degi og hefur hlotið lof fyrir frumleika. Þá fluttu nemendur í 9. bekk lagið „Áfram stelpur“ við góðar undirtektir.

Sýning á ritverkum úr heimabyggð

Í október var opnuð sýning á ritverkum Önnu Vigfúsdóttur og Kristínar Skúladóttur í samstarfi við Héraðsskjalasafn Rangæinga og Vestur-Skaftfellinga. Þar gaf að líta bréf, dagbækur og teikningar sem varpa ljósi á líf og sköpun kvenna á fyrri tíð.

Sýningin, sem bar heitið „Vönduð eru verkin skráð“, vakti mikla athygli gesta og stóð fram í nóvember. Fyrstu vikurnar var einnig hægt að skoða farandsýninguna „Kvennafrí og kvennasögusafn í 50 ár“, sem bætti enn við fræðslugildi sýningarinnar.

Bókmenntaganga í blíðviðri eftir byl

Þann 8. mars, á alþjóðlegum baráttudegi kvenna, var efnt til bókmenntagöngu um Hvolsvöll undir leiðsögn Margrétar Guðjónsdóttur. Þrátt fyrir óvenju óblítt veður fyrr um daginn rættist úr og þátttakendur nutu þess að ganga á milli lykilstaða í bænum og hlýða á texta eftir íslenskar konur.

Á meðal stoppa voru Stórólfshvolskirkja, heilsugæslan, Afrekshugur og bókasafnið sjálft, þar sem lesnir voru textar sem tengdust sögu, menningu og lífi kvenna. Að göngu lokinni var boðið upp á kaffi og spjall á bókasafninu – hlýlegur endir á fróðlegri og skemmtilegri göngu.

Viðburðirnir sýna glögglega hversu mikilvægu hlutverki bókasafnið gegnir sem menningar- og samverustaður í samfélaginu þar sem fræðsla, listsköpun og saga mætast.

Nýjar fréttir