Finnbogi Pétursson hlaut á dögunum Íslensku myndlistarverðlaunin árið 2026 fyrir sýninguna Skjálfta í Listasafni Árnesinga.
Við óskum Finnboga innilega til hamingju með viðurkenninguna, og nafnbótina Myndlistarmaður ársins. Það er safninu mikill heiður að hafa haldið utanum hina einstöku sýningu Skjálfta haustið 2025.
Sýningin var látlaus og umlukti skilningarvit áhorfenda, innsetning í rökkvuðu rými sem var samsett af spegildúk á vegg, ljósi úr lofti, duftkeri á stöpli og skjálftabylgjum. Hún vakti óvæntar tilfinningar. Speglunin og taktfast alltumvefjandi hljóðið laðaði áhorfandann að sér, kveikti hugleiðingar um kraft náttúrunnar, ódauðleika, hverfulleika og hvað tekur við þegar dauðinn knýr dyra.
Það er mat dómnefndar að Skjálfti kjarni leiðarstef annarra verka Finnboga, sem hafa verið innblástur listamanna, vakið áhuga fræðimanna og sýningargesta.
Listasafn Árnesinga

