3.4 C
Selfoss

Hjón opna bílaþvottastöð á Selfossi

Vinsælast

Ný bílaþvottastöð, Bílaþrif Selfoss, hefur hafið starfsemi í byrjun árs að Háheiði 9, bil nr. 10 á Selfossi, en að baki rekstrinum standa hjónin Ívar Kvaran Ásmundsson og Eyrún Björg Hilmisdóttir. Fyrirtækið var stofnað um áramótin og byggir á áralangri reynslu og miklum áhuga á bílum og bílaþrifum.

Ívar, sem hefur brennandi áhuga á bílaþrifum og sér alfarið um þrifin innan þjónustunnar hefur unnið við keramikhúðun í 8 ár og þegar tækifærið gafst ákváðu hjónin að stofna sinn eigin rekstur. Eyrún hefur mikinn áhuga á rekstrinum og styður dyggilega við verkefnið. Þá segja þau bæði hafa haft mikinn áhuga á bílum almennt, ekki aðeins bílaþrifum.

„Við bjóðum upp á þrif innan og utan en með meiri nákvæmni. Orðið „detailing“ er notað yfir þessi þrif en þar er farið ítarlegra í þrifin heldur en hefðbundin bílaþrif. Lögð er áhersla á að ná upprunalegu útliti bílsins og mikla vandvirkni. Við bjóðum einnig upp á sérhæfða þjónustu eins og lakkleiðréttingu, keramikhúðun og djúphreinsun. Keramikhúðun er öflug vörn fyrir bílinn sem verndar lakkið gegn óhreinindum og gefur fallegan gljáa. Hún gerir þrif einnig fljótlegari og auðveldari. Með lakkleiðréttingu getum við gefið lakkinu nýtt líf, fjarlægt yfirborðsrispur og dýpkað gljáann,” segja Eyrún og Ívar í samtali við Dagskránna.

Eyrún og Ívar segja að með 8 ára reynslu og þekkingu Ívars tryggi þau góða þjónustu og ánægða viðskiptavini. Hægt er að hafa samband við þau í gegnum tölvupóst btselfoss@gmail.com eða síma 888-1515.
„Við leggjum áherslu á að nota vandaðar og sérhæfðar vörur sem eru öruggar og skila sem bestum árangri fyrir yfirborð bílsins.”

SEG

Nýjar fréttir