3.4 C
Selfoss

Raddir íbúa skipta máli

Vinsælast

Svo segir í sveitarstjórnarlögum: „Sveitastjórn skal leitast við að tryggja íbúum sveitarfélagsins og þeim sem njóta þjónustu þess möguleika til að taka þátt í og hafa áhrif á stjórn sveitarfélagsins og undirbúning stefnumótunar.“

Þessi setning er ekki einungis formsatriði eða orð á blaði. Hún er grunnur að góðri ákvarðanatöku. Ef við ætlum að byggja upp sterkt og lifandi samfélag verðum við að taka hana alvarlega.

Samfélag verður ekki byggt ofan frá

Til að byggja upp sterkt og lifandi samfélag er samráð við íbúa nauðsynlegt. Tryggja þarf að raddir íbúa heyrist. Það eykur gagnsæi og traust, skilar sér í skilvirkari verkefnum og er grunnur að farsælli þróun samfélags. Ólík sjónarmið þurfa að fá að heyrast svo betri skilningur verði á þörfum ólíkra hópa.

Íbúar þekkja sitt nærumhverfi best. Þeir vita hvar áskoranirnar liggja, hvar tækifærin eru og hvað skiptir raunverulegu máli í daglegu lífi. Góð stjórnsýsla snýst ekki aðeins um að taka ákvarðanir, heldur réttar ákvarðanir. Það verður ekki gert nema með virku samtali við íbúa.

Að hlusta er fyrsta skrefið

Með þetta að leiðarljósi bauð D-listinn í Hveragerði til opins íbúafundar í Skyrgerðinni mánudagskvöldið 23. mars sl. Markmið fundarins var skýrt: að hlusta á raddir íbúa, kalla fram helstu áherslur þeirra og ræða framtíðarsýn fyrir samfélagið okkar.

Fundurinn var settur upp sem vinnustofa þar sem íbúar gátu með beinum hætti lagt sitt af mörkum við mótun stefnu D-listans. Umræðurnar spönnuðu fjölbreytt málefni, allt frá málefnum barna og fjölskyldna, samfélagsþjónustu og velferð, skipulagsmálum, samgöngum og innviðum sem og fjármál og forgangsröðun. Farið var yfir hvað íbúar vilja sjá gerast, hvað má bæta og hvert við viljum stefna. 

Samráð þarf að vera regla, ekki undantekning

Það sem stóð upp úr var ekki einungis umræðan sjálf heldur stemningin á fundinum. Það var greinilegt að íbúar í Hveragerði búa yfir dýrmætri reynslu, þekkingu sem og skoðunum á því hvernig megi efla bæinn okkar. Fundurinn sannaði mikilvægi þess að hlusta hvert á annað og vinna saman að sameiginlegum markmiðum. Með áframhaldandi samtali og þátttöku íbúa er hægt að byggja enn sterkari og betri framtíð fyrir Hveragerði. Samtöl sem þessi þurfa að vera regluleg, markviss og sýnileg í ákvarðanatöku, þannig hafa þau raunverulegt gildi.

D-listinn vill þakka fyrir góða mætingu og virka þátttöku íbúa. Framlag hvers og eins skiptir miklu máli. Við erum handviss um að opið samtal og virkt samráð tryggi okkur betri ákvarðanir og byggi sterkara samfélag.

Karitas Róbertsdóttir
skipar 5. sæti á D-listanum í Hveragerði

Nýjar fréttir