0 C
Selfoss

Kanadískur markvörður til liðs við Selfoss

Vinsælast

Knattspyrnudeild Selfoss hefur samið við kanadíska markvörðinn Sophie Guilmette um að leika með liðinu í Lengjudeildinni í sumar. Guilmette er 25 ára og kemur til félagsins með góða reynslu úr háskólabolta og meistaraflokki í heimalandi sínu.

Hún útskrifaðist frá McGill-háskólanum í Montreal árið 2024 þar sem hún lét mikið að sér kveða. Á þeim tíma var hún valin í stjörnulið skólans og hlaut jafnframt viðurkenningu fyrir framúrskarandi námsárangur.

Eftir útskrift hefur Guilmette leikið með CS Longueuil og Halifax Tides FC í Kanada. Þá hefur hún einnig reynslu af leik með yngri landsliðum Kanada.

Nýjar fréttir