0 C
Selfoss

Samfélag og lýðræði – hafðu þitt að segja um hverjir stjórna

Vinsælast

Nú í aðdraganda sveitarstjórnakosninga þegar flestir flokkar eru að kynna sína lista er mér umhugað um lýðræðið og þátttöku íbúa í kosningum. Ég er að bjóða mig fram í fyrsta skipti en hef haft mikinn áhuga á pólitík og kosningum frá unga aldri. Tekið þátt í lýðræðinu öll þau skipti sem ég hef fengið tækifæri til, því mér hefur fundist það mín skylda sem þátttakandi í samfélagi að segja mína skoðun og velja fulltrúa til að vinna fyrir samfélagið fram að næstu kosningum.

Í seinustu kosningum var kjörsókn í Sveitarfélaginu Árborg 63,81%. Það þýðir að tæplega 2/3 íbúa sveitarfélagsins með kosningarétt höfðu áhrif á niðurstöðu kosninganna. Í þeim kosningum hlaut einn flokkur 46,43% atkvæða, og vegna skiptingu annarra atkvæða, hlaut sá flokkur 6 fulltrúa og þar með hreinan meirihluta í bæjarstjórn. Því hefur núverandi meirihluti stuðning aðeins um 29% kosningabærra íbúa sveitarfélagsins.

Það skiptir máli hverjir stjórna

Í Sveitarfélaginu Árborg birta flokkarnir framboðslista sýna einn af öðrum og mikið af frambærilega fólki er að gefa kost á sér. Þó svo að ég geti ekki talað fyrir alla þessa frambjóðendur þá er það samfélagið sem við brennum fyrir og vegna þess viljum við gefa kost á okkur til að starfa fyrir samfélagið okkar næstu 4 árin.

Að því tilefni langar mig að skora á alla frambjóðendur að taka höndum saman og reyna að fá sem flesta til að taka þátt og kjósa í kosningunum þann 16. maí næstkomandi. Jafnframt að skora á íbúa Sveitarfélagsins Árborgar að kynna sér framboðin, málefnin sem þau standa fyrir og taka þátt í kosningunum.

Það er hagur okkar allra að kjörsókn aukist, fleiri taka þátt í lýðræðinu og kjörnir fulltrúar hafa sterkara umboð frá samfélaginu til góðra verka. Það skiptir máli hverjir stjórna og að þar ráði almannahagsmunir för en ekki sérhagsmunir sterkra bakhjarla einstakra framboða. Framboð Samfylkingarinnar og óháðra er skipað fjölbreyttum hópi fólks sem kemur víða að úr samfélaginu og úr öllum kjörnum sveitarfélagsins.

Samfylkingin og óháðir munu á næstu vikum kynna stefnumál sín og fyrsta skrefið var að senda könnun til íbúa þar sem við förum þess á leit við ykkur að gefa okkur vísbendingar um hvað brennur á ykkur. Við erum í framboði til þess að létta þér lífið því að saman erum við sterkari.

Brynjar Þór Elvarsson,
höfundur skipar 3. sæti á lista Samfylkingar og óháðra í Árborg.

Nýjar fréttir