0 C
Selfoss

Egill söngvari hittir Egil Thorarensen

Vinsælast

Fátt er skemmtilegra en að ganga með fólki um hinn nýja miðbæ Selfoss, fara yfir söguna og ganga hringinn inn á torgið. Ég hef alltaf vegferðina við styttuna af Agli Thorarensen, jarlinum af Sigtúnum, þar blasir upphafið við Ölfusárbrú, Tryggvaskáli og gestir eru staddir á hlaðinu í Sigtúnum við hið endurreista verslunarhús eða kaupmannshúsið og síðar hóf Kaupfélag Árnesinga starfsemi sína þar 1930.

Á dögunum var kominn söngvarinn ástsæli Egill Ólafsson og kona hans Tinna Gunnlaugsdóttir, ásamt læknishjónunum Þóri V Þórissyni og Auði Dúadóttur.

Styttan af Agli Thorarensen vekur mikla athygli við Brúartorgið en Egill telst guðfaðir Selfoss og Þorlákshafnar. En margir hafa orð á því að styttan sé ekki síður lík Agli Ólafssyni. Nú kom tækifærið að mynda þá saman kempurnar. En þessir góðu gestir kunnu sögu hinna endurreistu húsa í Brúarstrætinu. Enn fremur að svið Þjóðleikhússins var byggt úr brotajárni gömlu brúarinnar sem féll 1944 undan mjólkurbílum Mjólkurbús Flóamanna.

Og er alltaf jafn merkilegt að standa við kransinn í miðbænum með gesti sína og segja frá fallegasta húsi Selfoss, Mjólkurbúi Flóamanna, og undrunarsvipurinn sem færist yfir andlitin þegar greint er frá því að þetta hús var brotið niður þegar hið mikla og lágreista mjólkurbú reis aftur austast í þorpinu, og þessi perla var brotin niður með sleggjum og loftpressu. Að lokum drukku þessir góðu gestir kaffi í hinu fræga Konungskaffi sem eitt sinn var konungshúsið á Þingvöllum og síðar forsætisráðherrabústaðurinn sem brann 10. júlí 1970 og forsætisráðherrahjónin Bjarni Benediktsson og Sigríður Björnsdóttir ásamt ungum dóttursyni fórust í eldsvoðanum.

Guðni Ágústsson

Nýjar fréttir