Heiðrún Kristmundsdóttir verkefnastjóri leiðir nýjan lista Viðreisnar í Árborg. Listinn var staðfestur á félagsfundi Viðreisnar í Árnessýslu nú fyrir stundu. Þetta er í fyrsta sinn sem hægt verður að kjósa lista Viðreisnar í sveitarstjórnarkosningum í Árborg. Í öðru sæti er Guðný Björk Pálmadóttir, hönnuður og nýsköpunarverkfræðingur. Það þriðja skipar Þorsteinn Haukur Harðarson ráðgjafi. Í fjórða sæti er Birgir Marteinsson lögfræðingur og fimmta sætið skipar Ingunn Guðmundsdóttir viðskiptafræðingur.
„Þetta er öflugur listi sem ég hlakka mikið til að vinna með í komandi baráttu,“ segir Heiðrún Kristmundsdóttir, nýr oddviti Viðreisnar í Árborg. „Við ætlum að setja öfluga þjónustu við barnafjölskyldur á oddinn og leiðir til að takast á við vaxtarverki stækkandi sveitarfélags hér í Árborg. Við þurfum að halda áfram að taka til í rekstri bæjarfélagsins svo við getum forgangsraðað í þágu grunnþjónustu.”
Listi Viðreisnar í Árborg er svo skipaður:
- Heiðrún Kristmundsdóttir, verkefnastjóri
- Guðný Björk Pálmadóttir, hönnuður og nýsköpunarverkfræðingur
- Þorsteinn Haukur Harðarson, ráðgjafi
- Birgir Marteinsson, lögfræðingur
- Ingunn Guðmundsdóttir, viðskiptafræðingur
- Trausti Jóhannsson, teymisstjóri
- Sandra Guðmundsdóttir, forstöðukona
- Daníel Leó Ólason, raforkuverkfræðingur
- Ellen Amilía Óladóttir, ráðgjafi
- Valdimar Gylfason, rafvirki
- Alísa Rut Andradóttir, nemi
- Óli Kristján Ármannsson, blaðamaður og almannatengill
- Lovísa Lillý Davíðsdóttir, framhaldsskólanemi
- Sigurður Sólmundsson, verktaki
- Laufey Ósk Magnúsdóttir, ljósmyndari
- Sindri Ólafsson, rafvirki
- Björg Þorkelsdóttir, húsmóðir
- Þorvaldur Óskar Gunnarsson, viðskiptafræðingur
- Selma Klara Gunnarsdóttir, nemi
- Gísli Halldór Halldórsson, sviðsstjóri
- Sigurbjörg Björgvinsdóttir, hjúkrunarfræðingur á eftirlaunum
- Eyjólfur Sturlaugsson, framkvæmdastjóri

