-2.2 C
Selfoss

Sólveig Anna Bóasdóttir í Mosfellskirkju

Vinsælast

Fastan er tími til að koma saman, til að íhuga og iðrast, til að minnast og muna. Það er löng og gróin hefð fyrir miðvikudagsmessum í litlu svörtu kirkjunni að Mosfelli í Grímsnesi á föstutímanum. Í ár er engin undantekning á því og á þessari föstu er alla miðvikudaga kl. 19.30 boðið upp á messu með sérstöku íhugunarefni og endað með kirkjukaffi og samtali á prestsetrinu.

Í síðustu föstumessunni sem er 25. mars, mun dr. Sólveig Anna Bóasdóttir siðfræðingur og prófessor emerita fjalla um hið sígilda vandamál um hið illa í heiminum. Hvernig birtist það, hvaðan kemur það, er eitthvað sem við getum gert til að sporna við niðurrífandi áhrifum þess? Innilega velkomin að Mosfelli.

Nýjar fréttir