1.1 C
Selfoss

Styrktartónleikaröð í Hveragerðiskirkju

Vinsælast

Nú stendur fyrir dyrum hreinsun á orgelinu í Hveragerðiskirkju. Það er mikið verk og kostar sitt. Því verða haldnir tónleikar í kirkjunni nú á vormánuðum til styrktar þessu verkefni. Mikill fjöldi tónlistarmanna mun leggja okkur lið og eins og sjá má á meðfylgjandi mynd, verða tónleikarnir mjög fjölbreyttir.

Við kunnum öllum þessum tónlistarmönnum bestu þakkir fyrir þeirra framlag svo og öllum öðrum, sem komið hafa að skipulagningu og framkvæmd þessa verkefnis með einum eða öðrum hætti.

Við vonum að sem flestir sjái sér fært að mæta á tónleikana og stykja verkefnið og njóta góðrar tónlistar í leiðinni.

Áhugahópur um viðhald hljóðfæra í Hveragerðiskirkju

Nýjar fréttir