-1.1 C
Selfoss

FSu komst áfram í undanúrslit

Vinsælast

Í gærkvöldi mætti Fjölbrautaskóli Suðurlands, Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranes í átta liða úrslitum Gettu betur, spurningakeppni framhaldsskólanna.

Lið FSu mætti í gulum glæsilegum sérhönnuðum treyjum. FSu sigraði FVA örugglega með lokastigunum 27-14. FSu er þar með búið að tryggja sér sæti í undanúrslitum Gettu betur.

Lið Fjölbrautaskóla Suðurlands skipa þau Valgeir Gestur Eysteinsson, Hjálmar Vilhelm Rúnarsson og Hrafnhildur Svava Hemmert Sigurðardóttir.

FSu mætir Menntaskólanum í Reykjavík í undanúrslitum 26. mars næstkomandi fimmtudag.

Nýjar fréttir