Laugardaginn 21. mars verður mikil handverksgleði haldin í annað sinn á Bókasafni Árborgar Selfossi en viðburðurinn sló í gegn á síðasta ári en mikið af handverksfólki á Suðurlandi. Ýmiss konar handverk verður rætt og skoðað en þær konur sem halda uppi fjörinu eru Ásta Guðmundsdóttir listamaður og fatahönnuður sem ætlar að fjalla um það hvernig gömul föt geta breyst í ný, Kristín Stefánsdóttir veflistakona fjallar um sitthvað sem tengist vefnaði ásamt því að sýna ofin stykki og Kristjana Kona handverkslistakona fjallar um hekl, prjón, brjóst og ýmislegt fleira skemmtilegt.
Fjörið stendur frá kl. 15.00-17.00, kaffi og konfekt í boði og öll hjartanlega velkomin.


