-1.1 C
Selfoss

„Sunnudagsmaturinn“ í Póllandi

Vinsælast

Sunnlenski matgæðingur vikunnar er Julita Figlarska.

Ég vil byrja á því að þakka Kidda, yndislega tengdaföður mínum, fyrir áskorunina. Alltaf þegar okkur er boðið í mat til hans hlakka ég til, því það er undantekningarlaust algjör veisla!

Mig langar að fá að deila með ykkur „sunnudagsmatnum“ í Póllandi, þar sem ég á ættir að rekja þangað. Það er alltaf fögnuður á heimilinu þegar þessi réttur er í matinn!

Kotlety z kurczaka – „kjúklingasnitsel“

Hráefni

  • 4 stk. kjúklingabringur
  • Olía
  • Smjör
  • Brauðrasp
  • 2–3 egg (stundum þarf fleiri)
  • Hveiti
  • Kjúklingakrydd
  • Salt
  • Pipar
  • Paprikukrydd
  • Hvítlauksduft
  • Laukduft

Aðferð

Leggið kjúklingabringurnar á skurðarbretti og fletjið þær út með kjöthamri (eða kökukefli t.d.) svo þær þynnist. Ef þið viljið fá fleiri bita er líka hægt að skera bringurnar í tvennt og fletja þær aðeins minna út. Passið að það komi ekki gat á þær.

Kryddið bringurnar síðan á báðum hliðum með kryddunum sem nefnd eru í uppskriftinni eða þeim kryddum sem ykkur finnst gott að setja á kjúkling.

Setjið slatta af hveiti í eina skál, brjótið egg í aðra og setjið brauðrasp í þá þriðju. Setjið smá af þeim kryddum sem þið notuðuð á kjúklinginn út í eggin og pískið.

Veltið hverri og einni bringu fyrst upp úr hveiti, svo í eggjahrærunni og síðast í brauðraspinu og leggið á disk. Passið að bringurnar séu vel þaktar.

Þegar búið er að þekja allar bringurnar er hitað slatta af olíu á pönnu og bringurnar steiktar á báðum hliðum þar til raspið er gullbrúnt.

Raðið steiktu bringunum í eldfast mót, setjið nokkrar klípur af smjöri í mótið og setjið í ofn við 180°C í um 15–20 mínútur, svo þær klári að eldast í gegn.

Þá eru bringurnar tilbúnar. Mér finnst best að bera þær fram með stöppuðum kartöflum og dreifa smjörinu úr eldfasta mótinu yfir kartöflurnar.

Einnig er mjög klassískt að strá fersku eða þurrkuðu dilli yfir kartöflurnar ef þið viljið hafa þetta extra pólskt!

Þó má auðvitað bera þær fram með því sem ykkur finnst best. Ég ætla líka að fá að deila með ykkur klassísku pólsku gúrkusalati, „Mizeria“, sem er oft borið fram með réttinum.

Mizeria – gúrkusalat

Hráefni

  • 1 gúrka
  • Salt
  • Pipar
  • 1 dolla sýrður rjómi
  • ½ sítróna
  • Dill (valkvætt)

Aðferð

Skerið gúrkuna í þunnar sneiðar og setjið í skál. Stráið salti yfir og látið liggja í um 10 mínútur.

Sigtið síðan vatnið frá sem hefur myndast af gúrkunum. Setjið sýrða rjómann út í, kreistið smá sítrónusafa yfir og bætið við salti og pipar. Einnig er gott að setja ferskt (eða þurrkað) dill út í.

Hrærið þessu öllu saman og smakkið til með salti og pipar.

Verði ykkur að góðu!


Ég ætla að skora á vin minn, Sigurð Hrafn, að deila með ykkur góðri uppskrift í næstu viku.

Nýjar fréttir