Mikil uppbygging er nú í gangi hjá sænska tískuvörumerkinu Kappahl á Íslandi en næsta laugardag opnar verslunin á Selfossi við Larsenstræti 5.
Opnunin markar næsta skref í innleiðingu Kappahl á íslenskan markað eftir afar vel heppnaða opnun fyrstu verslunarinnar í Smáralind, þar sem fjölmenni mætti og viðtökurnar fóru fram úr björtustu vonum. Þúsundir hafa nú heimsótt verslunina í Smáralind frá því hún opnaði dyr sínar fyrir nokkrum dögum síðan.
„Við erum gríðarlega þakklát fyrir þær móttökur sem Kappahl hefur fengið. Það er ljóst að okkar íslensku viðskiptavinir kunna vel að meta samsetninguna af skandinavískri hönnun, góðum gæðum og hagkvæmu verði,“ segir Lóa Dagbjört Kristjánsdóttir, umboðsaðili Kappahl og Newbie á Íslandi.
Uppbygging um allt land
Með þessum opnunum er Kappahl að stíga stór skref í að byggja upp sterka viðveru um allt land og gera vörumerkið aðgengilegt fyrir alla landsmenn.
„Með opnununum á öllum kraganum í kringum borgina, þ.e. á Selfossi, Akranesi og Suðurnesjum ásamt því að opna í höfuðstað Norðurlands, Akureyri erum við að mæta markmiðum okkar um að þjónusta okkar viðskiptavini um allt land með öllu því sem áður var og gott betur. Með opnunum á þessum lykilstöðum erum við að taka mikilvægt skref í þá átt að gera Kappahl aðgengilegt fyrir bæði íbúa höfuðborgarsvæðisins og landsbyggðarinnar,“ segir Albert Þór Magnússon, umboðsaðili Kappahl og Newbie á Íslandi.
Stórt skref uppbyggingar
Verslanir á Selfossi, Glerártorgi, Akranesi og Suðurnesjum verða opnaðar samtímis kl. 12:00 á laugardag þar sem boðið verður uppá fatnað fyrir alla fjölskylduna sem inniheldur Kappahl annars vegar Newbie hins vegar. Þar verður því boðið upp á heildstæða upplifun fyrir alla fjölskylduna, þar sem fatnaður og undirfatnaður fyrir konur, karla og börn sameinast í einni verslun.
„Við erum gríðarlega þakklát fyrir þær móttökur sem við höfum fengið þar sem þetta ævintýri hófst í bílskúrnum við árbakkann á Selfossi fyrir rúmum 15 árum síðan. Við sjáum mikil tækifæri til að byggja upp öfluga verslun sem þjónar okkar frábæru viðskiptavinum hvaðanæva á landinu,” segir Lóa.
Sterk fjölskylduverslun með skandinavísk gildi
Kappahl var stofnað í Svíþjóð árið 1953 og er í dag eitt af leiðandi tískuvörumerkjum á Norðurlöndum með yfir 340 verslanir í Evrópu. Fyrirtækið leggur ríka áherslu á sjálfbærni, meðal annars með notkun lífrænnar bómullar, rekjanleika í framleiðslu og ábyrg vinnubrögð í allri virðiskeðjunni.
Verslanir Kappahl bjóða upp á fatnað fyrir konur, karla og börn allt frá sígildum grunnflíkum til tískufatnaðar og undirfatnaðar á hagkvæmu verði ásamt þvi að bjóða upp á Newbie vörulínuna.
Samhliða opnun verslananna geta viðskiptavinir einnig verslað í gegnum netverslunina kappahl.is, sem er opin allan sólarhringinn.
Framhaldið
Opnanirnar eru hluti af stærra uppbyggingarferli þar sem stefnt er að því að opna alls átta Kappahl-verslanir og a.m.k. eina sértæka Newbie-verslun á Íslandi á næstu misserum.
„Við erum rétt að byrja. Það eru spennandi tímar framundan og við hlökkum mikið til að halda áfram að byggja upp Kappahl og Newbie sem sterk og traust vörumerki á Íslandi,“ segir Albert að lokum.

