Framsókn og aðrir framfarasinnar í Rangárþingi eystra samþykktu einróma, á fundi sínum þann 16. mars, tillögu uppstillingarnefndar að framboðslista fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar þann 16. maí 2026.
Listinn samanstendur af fjölbreyttum hópi fólks á ólíkum aldri, bæði úr þéttbýli og dreifbýli. Frambjóðendur hafa víðtæka reynslu úr atvinnulífi og félagsstarfi og taka virkan þátt í samfélaginu. Sameiginlegt markmið þeirra er að stuðla að bættum lífsgæðum, efla þjónustu við íbúa og styrkja uppbyggingu byggðar í Rangárþingi eystra.
Á listanum er bæði fólk með mikla reynslu af sveitarstjórnarmálum og nýir frambjóðendur sem koma með fjölbreyttan bakgrunn og nýja sýn.
Rafn Bergsson bóndi og sveitarstjórnarfulltrúi er oddviti listans en Rafn hefur setið í sveitarstjórn Rangárþings eystra sl. 8 ár og býr því yfir yfirgripsmikilli þekkingu á málefnum og rekstri sveitarfélagsins.
- Rafn Bergsson bóndi og sveitarstjórnarfulltrúi
- Bjarki Oddsson, rannsóknarlögreglumaður og sveitarstjórnarfulltrúi
- Gunnhildur Jónsdóttir bóndi og sjúkraliði
- Harpa Sif Þorsteinsdóttir leikskólakennari
- Jón Pétur Þorvaldsson vörubílstjóri
- Sigrún Bjarnadóttir, dýralæknir og bóndi
- Ágúst Jensson bóndi
- Ída Rún Sveinsdóttir hársnyrtisveinn og nemi
- Ragnar Lárusson bóndi
- Ólöf Sara Garðarsdóttir ferðamálafræðingur
- Lea Birna Lárusdóttir kennari
- Stefán Bjarki Smárason fótboltaþjálfari og leikskólastarfsmaður
- Ásta Brynjólfsdóttir sérkennari
- Lilja Einarsdóttir hjúkrunarforstjóri og sveitarstjórnarfulltrúi

